Aldrei sést fleiri hafernir á svæðinu en í ár 21. janúar 2012 06:00 Vetrarfuglatalningar hafa verið samfellt á Íslandi frá 1952. fréttablaðið/valli
Árleg talning vetrarfugla, sem er nýlokið, sýnir mikið og fjölskrúðugt fuglalíf á norðanverðu Snæfellsnesi. Á talningasvæðunum nú voru 29 þúsund fuglar af 39 tegundum. Fuglalífið er óvenju blómlegt vegna mikillar síldargengdar í Breiðafirði, og á það við fjórða veturinn í röð. Nú sáust enn fleiri fuglar en áður, að því er kemur fram á vef Náttúrustofu Vesturlands. Á meðal þess sem mesta athygli vekur er gríðarlegur fjöldi máfa, súlna og annarra fiskæta. Algengustu tegundirnar voru svartbakur, æðarfugl og hvítmáfur en máfar, æður, súla og fýll voru samtals ríflega 80% af heildarfjölda. Samtals sáust 16 hafernir, fleiri en nokkru sinni fyrr. Náttúrufræðistofnun tekur við niðurstöðum talninganna og er búist við að talið hafi verið á nærri 180 svæðum á Íslandi í ár. Árlegar vetrarfuglatalningar hófust á Íslandi um jólaleytið 1952 að bandarískri fyrirmynd. Á síðustu árum hafa hátt á annað hundrað manns tekið þátt. Talningar fóru lengst af fram um jólin og af þeim sökum hafa talningar þessar oft verið nefndar jólatalningar. Markmiðið er að safna upplýsingum um fjölda og dreifingu fugla að vetrarlagi. Talningar eru staðlaðar og geta því nýst til vöktunar einstakra stofna. - shá
Mest lesið Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Innlent „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Innlent Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Innlent „Þetta er smjörklípa“ Innlent Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á hóteli í miðbænum Innlent Einn grunaður um íkveikju á Center Hotel Skjaldbreið Innlent Fleiri fréttir Svínum sleppt út í Saltvík „Þetta er smjörklípa“ Minningarstundir og ESA undirbýr dómsmál Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Aðild að ESB hafi aldrei verið markmið í sjálfu sér Einn grunaður um íkveikju á Center Hotel Skjaldbreið Bruninn mikið áfall og tjónið líklega verulegt í versluninni Um þriðjungur þjóðarinnar horfði á síðasta fréttatímann Flúði hótelherbergið vegna brunans og gleymdi tönnunum Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Eldri borgarar fái sanngjarnari tekjur þrátt fyrir aukin gjöld Gestir fluttir á önnur hótel vegna skemmda eftir brunann Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Lægð nálgast og hviður geta orðið bílum skeinuhættar Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða „Hér var enginn glæpur og ekki heldur gáleysi“ Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á hóteli í miðbænum Tvær líkamsárásir í miðbæ í nótt Hálft ár fyrir ræktun á þriðja hundrað kannabisplantna Kynna úrræði sem eigi að liðka fyrir kjarasamningum „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Allir níu áfram í haldi Mátti ekki gefa blóð í gær en gerði það í dag Staðan hafi ekki verið betri á þessari öld Halla verður viðstödd útför Haraldar Ætli að leggja áherslu á bókun 35 Viðreisn tapar fylgi Sigríður Þorvaldsdóttir látin Hópuppsögn á sviði heilsu- og líkamsræktar Sjá meira