Hlaupa maraþon á Gasa fyrir börnin 21. janúar 2012 20:00 Þessi mynd var tekin í fyrra, þegar Gasamaraþonið fór fram í fyrsta sinn. Búist er við að um þúsund palestínsk börn taki þátt í Gasamaraþoninu sem fram fer í mars næstkomandi. Öllum er frjálst að taka þátt í hlaupinu og rennur þátttökufé beint í Sumarbúðir Sameinuðu þjóðanna, sem öllum börnum á Gasa verður boðið að taka þátt í.
Eitt þeirra verkefna sem Ísland-Palestína styrkir er Gasamaraþonið sem fram fer 1. mars næstkomandi í annað sinn. Gasasvæðið er mjó strandlengja, 42 kílómetra löng, sem er einmitt vegalengd heils maraþons. Hlaupið verður frá Beit Hanoun í Egyptalandi í norðri, suður til Rafah í suðri. Búist er við að um 1.000 palestínsk börn taki þátt. „Þau fá skó, bol til að hlaupa í og mat yfir daginn. Í einn dag fá þau að upplifa sig sjálf eins og börn sem skipta máli og umheimurinn lætur sig varða," segir Lára. Hún segir að börnin hlaupi þær vegalengdir sem þau treysti sér til, en mörg þeirra þjáist af næringarskorti og hafa því ekki fullan þrótt. Bæði atvinnu- og áhugahlauparar taka þátt í hlaupinu auk annarra stuðningsmanna Palestínumanna víðs vegar að. Þátttaka er öllum frjáls. Það fé sem þátttakendur greiða fyrir hlaupið rennur til Sumarleika Sameinuðu þjóðanna, sem 250 þúsund börnum á Gasa býðst að taka þátt í næsta sumar. Búðum verður slegið upp víðs vegar um Gasasvæðið, þar sem börnum gefst tækifæri til að taka þátt í íþróttum, listrænu starfi, tónlistarsköpun og fleiru sem börn í öðrum löndum þekkja frá sínum leikjanámskeiðum. Þar geta þau dvalið óttalaus. Sumarbúðirnar eru kærkomin hvíld frá erfiðum hversdagsleika þeirra sem einkennist af fátækt, örvæntingu og ófriði. „Það væri ekkert að gera fyrir 250 þúsund börn á Gasa, ef Sameinuðu þjóðirnar settu ekki upp þessar sumarbúðir," segir Lára og hvetur hlaupara til að taka þátt í maraþoninu í mars. Hafa má samband við Láru vegna hlaupsins í gegnum vefsíðu Félagsins Ísland-Palestína, palestina.is.
Mest lesið Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Innlent „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Innlent Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Innlent „Þetta er smjörklípa“ Innlent Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á hóteli í miðbænum Innlent Einn grunaður um íkveikju á Center Hotel Skjaldbreið Innlent Fleiri fréttir Svínum sleppt út í Saltvík „Þetta er smjörklípa“ Minningarstundir og ESA undirbýr dómsmál Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Aðild að ESB hafi aldrei verið markmið í sjálfu sér Einn grunaður um íkveikju á Center Hotel Skjaldbreið Bruninn mikið áfall og tjónið líklega verulegt í versluninni Um þriðjungur þjóðarinnar horfði á síðasta fréttatímann Flúði hótelherbergið vegna brunans og gleymdi tönnunum Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Eldri borgarar fái sanngjarnari tekjur þrátt fyrir aukin gjöld Gestir fluttir á önnur hótel vegna skemmda eftir brunann Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Lægð nálgast og hviður geta orðið bílum skeinuhættar Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða „Hér var enginn glæpur og ekki heldur gáleysi“ Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á hóteli í miðbænum Tvær líkamsárásir í miðbæ í nótt Hálft ár fyrir ræktun á þriðja hundrað kannabisplantna Kynna úrræði sem eigi að liðka fyrir kjarasamningum „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Allir níu áfram í haldi Mátti ekki gefa blóð í gær en gerði það í dag Staðan hafi ekki verið betri á þessari öld Halla verður viðstödd útför Haraldar Ætli að leggja áherslu á bókun 35 Viðreisn tapar fylgi Sigríður Þorvaldsdóttir látin Hópuppsögn á sviði heilsu- og líkamsræktar Sjá meira