Norræn bros í þrot með tannígræðslur 21. janúar 2012 07:30 Reyna á að opna tannígræðslustofuna á ný. fréttablaðið/anton
Tannlæknastofunni Nordic Smile var lokað eftir fárra mánaða rekstur. Leita fjárfesta og stefna að því að opna á ný. Samningaviðræður standa yfir við Höfðatorg vegna ógreiddrar leigu. Seljandi tannlæknastóla bjargaði sér fyrir horn. Loka varð tannlæknastofunni Nordic Smile á Höfðatorgi í lok júlí í fyrra þar sem erlendir fjárfestar brugðust. Stofan hafði þá aðeins verið rekin í nokkra mánuði. Reyna á að opna Nordic Smile á ný, að sögn dr. Ólafs Ólafssonar, talsmanns fyrirtækisins. Í nefndaráliti frá því í júní um lækningar yfir landamæri, sem birt var á heimasíðu velferðarráðuneytisins, sagði að með nýrri tækni gæti Nordic Smile boðið tannígræðsluþjónustu sína á verði sem væri um 30 prósent af verðinu í Bretlandi og Bandaríkjunum. Markhópur fyrirtækisins væri alþjóðlegur en gera mætti ráð fyrir að það yrðu aðallega Bretar og Bandaríkjamenn sem nýttu sér þjónustuna til að byrja með. Þar sagði jafnframt: „Fólk hér á landi mun einnig geta nýtt sér þjónustu fyrirtækisins.“ Þegar stofunni var lokað í fyrrasumar voru nokkrir íslenskir viðskiptavinir fyrirtækisins með ókláraða tannígræðslu. „Þeim var vísað á íslenska tannlækna sem höfðu starfað á Nordic Smile ásamt sænsku tannlæknunum tveimur sem þar störfuðu. Þetta voru tannlæknar sem voru með eigin stofur annars staðar,“ segir Ólafur. Tíu tannlæknastólar voru settir upp á áttundu hæð í turninum á Höfðatorgi auk annarra tannlækningatækja. Þar sem ekkert fjármagn var í Nordic Smile var ekki hægt að greiða seljandanum. „Við gátum selt íslenskum tannlæknum stólana. Með því að kaupa þá var okkar fyrirtæki bjargað fyrir horn,“ segir Hrafnhildur Sigþórsdóttir, skrifstofustjóri Tannhjóls ehf. Nordic Smile leigði hjá Höfðatorgi en stóð ekki í skilum með húsaleigu. „Við erum með nokkrar kröfur á þá. Við höfum átt ágætis samstarf við þetta fólk og stefnan hjá þeim er að gera upp. Ég held að þeir ætli að reyna að opna aftur. Við erum allavega í þannig viðræðum við þá,“ segir Pétur Guðmundsson, fulltrúi Höfðatorgs. Ólafur segir reynt að róa öllum árum að því að fá fjárfesta til þess að fyrirtækið verði ekki sett í gjaldþrot. „Það á að reyna að opna aftur. Þetta er mjög spennandi verkefni og áhugavert fyrir ferðaþjónustuna. Það er gert ráð fyrir að ef starfsemin væri á fullu gætu viðskiptavinir verið um 300 á mánuði.“ ibs@frettabladid.is
Mest lesið Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Innlent „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Innlent Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Innlent Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á hóteli í miðbænum Innlent Kynna úrræði sem eigi að liðka fyrir kjarasamningum Innlent „Hér var enginn glæpur og ekki heldur gáleysi“ Innlent Neitar að hafa myrt Charlie Kirk Erlent Minningarstundir vegna andlátanna Innlent Fleiri fréttir Bruninn mikið áfall og tjónið líklega verulegt í versluninni Um þriðjungur þjóðarinnar horfði á síðasta fréttatímann Flúði hótelherbergið vegna brunans og gleymdi tönnunum Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Eldri borgarar fái sanngjarnari tekjur þrátt fyrir aukin gjöld Gestir fluttir á önnur hótel vegna skemmda eftir brunann Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Lægð nálgast og hviður geta orðið bílum skeinuhættar Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða „Hér var enginn glæpur og ekki heldur gáleysi“ Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á hóteli í miðbænum Tvær líkamsárásir í miðbæ í nótt Hálft ár fyrir ræktun á þriðja hundrað kannabisplantna Kynna úrræði sem eigi að liðka fyrir kjarasamningum „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Allir níu áfram í haldi Mátti ekki gefa blóð í gær en gerði það í dag Staðan hafi ekki verið betri á þessari öld Halla verður viðstödd útför Haraldar Ætli að leggja áherslu á bókun 35 Viðreisn tapar fylgi Sigríður Þorvaldsdóttir látin Hópuppsögn á sviði heilsu- og líkamsræktar Minningarstundir vegna andlátanna Þorgerður sinnir starfi sveitarstjóra í eitt ár Andarnefja í andarslitrunum á Djúpavogi Báðar fylkingar eyddu milljónum í samfélagsmiðlaauglýsingar Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Byrjað að leggja Borgarlínu við Nauthólsveg Svekktir og reiðir stjórnendur komu saman við Ráðhúsið Sjá meira