Bankar ættu að fá mismunandi leyfi 21. janúar 2012 06:15 Már Guðmundsson seðlabankastjóri og Þórólfur Matthíasson, forseti Hagfræðideildar HÍ, sem stýrði fundi. Fréttablaðið/Stefán
Á meðan sum ríki Evrópu standa fyrir utan evrusamstarfið ganga markmið Evrópusambandsins (ESB) um sömu leikreglur fyrir öll fjármálafyrirtæki ekki upp. Þetta er meðal þess sem fram kom í erindi Más Guðmundssonar seðlabankastjóra á fyrsta fundi ársins í Evrópufundaröð Alþjóðamálastofnunar HÍ í gær. Már fjallaði um hvernig gallar í regluverki ESB hefðu komið berlega í ljós við fall íslensku bankanna haustið 2008. Starfsleyfi banka á innra markaði Evrópu, í gegnum aðild landsins að EES, hafi orðið til þess að bankarnir gátu safnað upp gífurlegri gjaldeyrisáhættu sem gerði Seðlabanka Íslands ómögulegt að standa við hlutverk sitt sem lánveitandi til þrautavara. Fram kom í máli Más að hugmyndir sem hann og fleiri hafa viðrað um mögulega lausn hafi hlotið góðan hljómgrunn í hópi annarra seðlabankastjóra, en óvíst sé hvernig endanleg endurskipulagning á reglum fjármálamarkaða komi til með að líta út á vettvangi ESB. Framkvæmdastjórn ESB hafi aðrar áherslur en séu ofan á í hópi seðlabankastjóra álfunnar. Már hefur lagt til að búin verði til að minnsta kosti tvenns konar starfsleyfi fyrir banka í Evrópu. „Starfsleyfi á millibankamarkaði í Evrópu þarf að kallast á við evrópskt eftirlit og öryggisnet, en með öryggisneti á ég við innstæðutryggingakerfi og lánveitanda til þrautavara,“ segir hann. Lönd á evrópska efnahagssvæðinu gætu svo gefið út annars konar starfsleyfi handa bönkum sem einungis ætluðu að starfa innanlands. Hér myndu slíkir bankar heyra undir Fjármálaeftirlitið (FME) og hafa bakland í Seðlabankanum. Síðan mætti mögulega aðgreina starfsleyfi enn frekar, svo sem með því að bankar með mjög einfalda starfsemi, líkt og sparisjóðir, fengju annars konar starfsleyfi og þyrftu ekki að hlíta jafnströngum reglum og aðrir. - óká
Mest lesið Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Innlent Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á hóteli í miðbænum Innlent Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Innlent Kynna úrræði sem eigi að liðka fyrir kjarasamningum Innlent „Hér var enginn glæpur og ekki heldur gáleysi“ Innlent Munu verja hagsmuni sína á norðurslóðum „með öllum ráðum“ Erlent Neitar að hafa myrt Charlie Kirk Erlent Hálft ár fyrir ræktun á þriðja hundrað kannabisplantna Innlent Fleiri fréttir Eldri borgarar fái sanngjarnari tekjur þrátt fyrir aukin gjöld Gestir fluttir á önnur hótel vegna skemmda eftir brunann Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Lægð nálgast og hviður geta orðið bílum skeinuhættar Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða „Hér var enginn glæpur og ekki heldur gáleysi“ Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á hóteli í miðbænum Tvær líkamsárásir í miðbæ í nótt Hálft ár fyrir ræktun á þriðja hundrað kannabisplantna Kynna úrræði sem eigi að liðka fyrir kjarasamningum „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Allir níu áfram í haldi Mátti ekki gefa blóð í gær en gerði það í dag Staðan hafi ekki verið betri á þessari öld Halla verður viðstödd útför Haraldar Ætli að leggja áherslu á bókun 35 Viðreisn tapar fylgi Sigríður Þorvaldsdóttir látin Hópuppsögn á sviði heilsu- og líkamsræktar Minningarstundir vegna andlátanna Þorgerður sinnir starfi sveitarstjóra í eitt ár Andarnefja í andarslitrunum á Djúpavogi Báðar fylkingar eyddu milljónum í samfélagsmiðlaauglýsingar Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Byrjað að leggja Borgarlínu við Nauthólsveg Svekktir og reiðir stjórnendur komu saman við Ráðhúsið Komugjald lagt á: „Þetta er auðvitað ekkert annað en skattlagning“ SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Norðausturland fær loks langþráðan veg Tjón vegna skemmdarverka hlaupi á milljónum Sjá meira