Innlent

Flughált og slæm færð víða

Það er hálka á Sandskeiði, Hellisheiði og í Þrengslum. Á Suðurlandi er víðast hálka, snjóþekja eða jafnvel þæfingur. Flughált er austan Hvolsvallar.

Í tilkynningu segir að slæmt veður er á Vesturlandi, snjókoma í Borgarfirði en stórhríð víða á Snæfellsnesi og sumstaðar í Dölunum og beðið með mokstur.

Stórhríð er einnig á sunnanverðum Vestfjörðum og ekki ferðaveður. Verið er að moka Gemlufallsheiði en beðið er með mokstur í Ísafjarðardjúpi, á Steingrímsfjarðarheiði og Þröskuldum. Á Norðurlandi er víðast hvar hálka eða snjóþekja. Þæfingsfærð er fyrir Vatnsnes.

Hálka eða snjóþekja er á flestum vegum á Austurlandi. Á Suðausturlandi er sumstaðar snjókoma. Þæfingsfærð er vestan Kirkjubæjarklausturs og flughált á Mýrdalssandi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×