Reknir úr EM-hóp Pólverja fyrir drykkjulæti Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 9. apríl 2012 08:00 Marcin Wasilewski. Mynd/Nordic Photos/Getty
Franciszek Smuda, þjálfari Pólverja, ætlar að taka strangt á agamálum innan síns liðs fram að Evrópumótinu í fótbolta í sumar og Smuda er tilbúinn að "fórna" tveimur fastamönnum til þess að sýna það í verki. Pólverjar eru gestgfjafar á EM ásamt Úkraínumönnum. Landsliðsmennirnir Slawomir Peszko og Marcin Wasilewski fá ekki að vera með á EM í sumar eftir að upp komst um drykkjulæti þeirra um helgina. Peszko, sem leikur með Köln og Wasilewski, sem leikur með Anderlecht, lentu upp á kant við leigubílstjóra á fylleríi í Þýskalandi sem endaði á því að leigubílstjórinn keyrði þá beint upp á lögreglustöð. „Ég mun ekki horfa framhjá þessu og þeir eru báðir út úr hópnum fyrir EM 2012. Það er enginn möguleiki fyrir þá að komast í 23 manna hópinn," sagði Franciszek Smuda við pólska fjölmiðla í gær. Slawomir Peszko er 27 ára miðjumaður sem á að baki 24 landsleiki og Marcin Wasilewski er 31 árs varnarmaður sem á að baki 45 landsleiki. Það var talið nokkuð öruggt að þeir félagar yrðu báðir með í 23 manna lokahóp Póllands. „Skammast þeir sín ekki? Pólverjar fá einu sinn enn slæma fjölmiðlaumfjöllun í Þýskalandi og eru enn á ný nefndir í tengslum við áfengi og slagsmál," sagði Franciszek Smuda glerharður.
Mest lesið Er nýi Haaland íslenskur? Fótbolti Arnór í leyfi frá störfum Fótbolti Veggmynd hetju Spánverja á HM eyðilögð strax Fótbolti The Times: Norska sambandið mun kvarta undan Trump Fótbolti „Auðveldara að reka einn þjálfara en 23 leikmenn“ Íslenski boltinn Uppgjörið: RFS - Vestri 4-1 | Þurfa kraftaverk í Reykjavík Fótbolti Bergrós meðal fimmtán efstu eftir fyrsta daginn Sport Verið að rannsaka Inter Miami eftir kaupin á Casemiro Fótbolti Messi er mesti yfirburðamaður eins liðs í HM-sögunni Fótbolti Fengu þyngd sína í tómötum fyrir að verða heimsmeistarar Fótbolti Fleiri fréttir Valur - Zrinjski Mostar | Fyrsta Evrópueinvígi Valsmanna í sumar Stjarnan - Ilves | Hvernig svarar Stjarnan fyrir skellinn um helgina? „Ótrúlega spennandi sóknarmaður“ Ítalía nær ekki að krækja í Guardiola Modric tekur slaginn áfram í Mílanó Uppgjörið: RFS - Vestri 4-1 | Þurfa kraftaverk í Reykjavík „Klopp er tvímælalaust rétti maðurinn“ Arnór í leyfi frá störfum Sveigja fram hjá reglum og fá Garnacho fyrst að láni Spilaði á móti Þór um síðustu helgi og var síðan lánaður til Þórs Eftirmaður Trossard er Grikki en kemur frá Belgíu Segir að ítalski fótboltinn þurfi að horfa til Spánar Barcelona kaupir Adeyemi Arsenal án lykilmanns í marga mánuði Spilar gegnum meiðsli: „Verður örugglega svolítið vont“ Meiddir Valsmenn, ævintýri Vestra og svar Stjörnunnar Gegndrepa Jón Þór bíður sólarinnar Orri og félagar tolleruðu heimsmeistarann sinn Mateus Fernandes með stórbrotið mark í fyrsta leik með Tottenham „Auðveldara að reka einn þjálfara en 23 leikmenn“ The Times: Norska sambandið mun kvarta undan Trump Er nýi Haaland íslenskur? Messi er mesti yfirburðamaður eins liðs í HM-sögunni Fengu þyngd sína í tómötum fyrir að verða heimsmeistarar Veggmynd hetju Spánverja á HM eyðilögð strax Þurfti að hætta við æfingu eftir mótmæli leikmanns Verið að rannsaka Inter Miami eftir kaupin á Casemiro Víkingarnir halda toppsætinu Segir Paredes ekki eiga að fá bann þrátt fyrir að hafa ráðist á sig Casemiro orðinn leikmaður Inter Miami Sjá meira