Þátttökubekkir ekki komnir á áætlun 12. nóvember 2012 06:00 Ragnar Þorsteinsson
Svokallaðir þátttökubekkir fyrir þroskahamlaða sem menntaráð Reykjavíkurborgar samþykkti í janúar í fyrra að komið yrði á fót eru enn ekki komnir í framkvæmd. Klettaskóli er valkostur fyrir börn með sérþarfir. Þátttökubekkir yrðu millistig milli Klettaskóla og almennra skóla og í umsjón Klettaskóla. "Mjög líklega yrði markhópurinn börn sem gætu bæði verið í Klettaskóla og almennum grunnskólum," segir Ragnar Þorsteinsson, sviðsstjóri skóla- og frístundasviðs Reykjavíkur. Þó stefnt hafi verið að því að þátttökubekkir væru komnir í gagnið haustið 2013 og að þeir séu inni í ný endurskoðaðri stefnu borgarinnar um skóla án aðgreiningar bendir Ragnar á að fjárhagsáætlun borgarinnar fyrir næsta ár verði ekki ljós fyrr en í næsta mánuði. Því sé enn óvíst hvort bekkirnir komist í gagnið á næsta ári. Þegar endurskoðun stefnunnar var samþykkt samhljóða í skóla- og frístundaráði á miðvikudag sögðu fulltrúar Sjálfstæðisflokksins núverandi framkvæmd stefnunnar umdeilda. "Meðal annars hefur verið bent á að foreldrar, sem telja að sérskóli henti börnum þeirra betur en heimaskóli, eigi ekki kost á raunverulegu vali milli þessara tveggja kosta," sagði í bókun þeirra. "Þetta gæti verið valkostur fyrir þau," svarar Ragnar aðspurður hvort þátttökubekkirnir standi til boða þroskahömluðum börnum sem í dag falla milli skips og bryggju að því leytinu til að finna sig ekki í almennum skóla en uppfylla ekki inntökuskilyrði í Klettaskóla. "Inntökureglur fyrir þessa þátttökubekki hafa ekki verið mótaðar enn. Það gætu orðið önnur inntökuskilyrði en í Klettaskóla," segir sviðsstjórinn. - gar
Mest lesið Senda þjóðinni „skýr skilaboð“ á óróatímum Innlent 33 ára sósíalisti hafði betur gegn Cuomo í New York Erlent Vilja ábendingar um „kettlingamyllur“ og síendurtekin got Innlent Bassi Maraj sakfelldur fyrir líkamsárás Innlent Segja manninn hafa glímt við alvarleg veikindi Innlent Sjúkratryggingar réðu illa við læknana í Reykjavík Innlent Skildi ekki hvers vegna kennarinn var ekki rekinn Innlent Rangstæð valkyrja sem skilji ekki frumvarpið Innlent Flagga íslenska þjóðfánanum í ólöglegri göngu Innlent Ræddu veiðigjöldin til að ganga hálf fjögur Innlent Fleiri fréttir Var ekki með réttindi til að aka hjólinu sem átti ekki að vera í umferð Bassi Maraj sakfelldur fyrir líkamsárás Lokanir á brúnni yfir Jökulsá í kvöld Rangstæð valkyrja sem skilji ekki frumvarpið Flagga íslenska þjóðfánanum í ólöglegri göngu Læknasamningur gæti orðið hvati að oflækningum Sjúkratryggingar fagna skýrslu Ríkisendurskoðunar Sjúkratryggingar réðu illa við læknana í Reykjavík Benedikt nýr skólameistari VMA Meirihluti vill stöðva málþóf á Alþingi Vilja ábendingar um „kettlingamyllur“ og síendurtekin got Verður nýr skólameistari á Húsavík Senda þjóðinni „skýr skilaboð“ á óróatímum Skildi ekki hvers vegna kennarinn var ekki rekinn Ræddu veiðigjöldin til að ganga hálf fjögur Slagsmál á hóteli í miðborginni Margir í vandræðum vegna of skyggðra rúðna Tillögur um skattalækkanir felldar: Segir ótrúlegt að hlusta á rök „Skattfylkingarinnar“ Segja manninn hafa glímt við alvarleg veikindi Reiður Trump, fiskeldisáform í Eyjafirði og fjölbragðaglíma Efla samstarf Háskóla Íslands og Íslenskrar erfðagreiningar Vilja bjóða út eftirlit en meirihlutanum líst ekkert á það Stuðningur við veiðigjaldafrumvarpið dregst saman Ekki um sama þvott að ræða í Björg og Fönn Páll skipstjóri krefur Ríkisútvarpið um milljónir króna „Þetta rugl í Kastljósi í gær af hálfu forsætisráðherra er skammarlegt“ Vopnahlé í Miðausturlöndum í hættu og veiðigjöldin enn til umræðu Eldur í tveimur taugrindum Sektaður um 240 þúsund fyrir að halda sauðfé í Grindavík Fundað á Alþingi fram á nótt og framhald strax klukkan tíu Sjá meira