Innlent

Óánægja með Ástu Ragnheiði - 5 stjórnarþingmenn vilja hana burt

Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir er forseti Alþingis.
Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir er forseti Alþingis.
Mörður Árnason, þingmaður Samfylkingarinnar, telur rétt að Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir láti af embætti forseta Alþingis. Hann ætlar að styðja tillögu þessa efnis sem nú er í undirbúningi. Mikil óánægja er með störf Ástu Ragnheiðar meðal þingmanna Samfylkingarinnar eftir atkvæðagreiðsluna um Landsdómsmálið á föstudag.

Birgitta Jónsdóttir, þingmaður Hreyfingarinnar, ætlar að leggja fram vantrausttillögu á hendur Ástu Ragnheiði og vill að hún láti af embætti forseta Alþingis. Birgitta ætlar að safna undirskriftum meirihluta þingmanna áður en hún leggur tillöguna fram.

Samkvæmt hemildum fréttastofu hafa fimm stjórnarþingmenn nú þegar ákveðið að styðja tillöguna þar á meðal Mörður Árnason flokksbróðir Ástu Ragnheiðar. Mörður sagðist í samtali við fréttastofu vera ósáttur við að Ásta hafi ekki svarað fyrirspurn hans á Alþingi um hvort saksóknaranefnd gæti fjallað um tillögu Bjarna Benediktssonar. Þetta hafi verið kornið sem fyllti mælinn.

Samkvæmt heimildum fréttastofu ætla tveir þingmenn Samfylkingarinnar til viðbótar að styðja tillögu Birgittu.

Mikil óánægja er innan Samfylkingarinnar með störf Ástu Ragnheiðar í tengslum við Landsdómsmálið. Ungliðahreyfing Samfylkingarinnar sendi frá yfirlýsingu um helgina þar sem lýst var yfir vantrausti á Ástu Ragnheiði og meðal annars gagnrýnt að hún hafi ekki leyft varamanni Sigmundar Ernis Rúnarssonar að setjast á þing.

Þá hefur ákvörðun Össurar Skarphéðinssonar, utanríkisráðherra, um að flýta heimkomu sinni frá útlöndum á föstudag til að taka þátt í atkvæðagreiðslu um landsdómsmálið skapað ólgu innan þingflokksins. Össur greiddi atkvæði gegn frávísunartillögu Magnúsar Orra Schram, þingmanns Samfylkingarinnar.

Fréttablaðið greinir frá því í dag að mikill hiti hafi verið þingflokksfundi eftir að atkvæðagreiðslunni lauk og þar hafi einn þingmaður lýst því yfir að hann tæki sér ótímabundið frí frá störfum þingflokkssins og að annar hafi lýst því yfir að hann væri ekki lengur bundinn af samþykktum flokksins.

Ekki náðist í Össur Skarphéðinsson í morgun.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×