Vill styðja fjárfestingu og efla tengsl 23. janúar 2012 03:00 í Abu Dhabi Forsetaembættið segir Wen Jiabao ætla að gera sitt besta til að heimsækja Ísland. Mynd/forseti.is
Kína styður viðleitni Evrópuþjóða til þess að viðhalda fjármálalegum stöðugleika og hagvexti. Fréttavefur Kínverska ríkisútvarpsins (CRI) greinir frá því að Wen Jiabao, forsætisráðherra Kína, hafi látið þessi orð falla á fundi með Ólafi Ragnari Grímssyni, forseta Íslands, í byrjun síðustu viku þegar þeir hittust á heimsþingi hreinnar orku í Abu Dhabi í Sameinuðu arabísku furstadæmunum. CRI segir forsætisráðherrann hafa borið lof á árangur sem náðst hafi í góðum samskiptum Íslands og Kína og kvað Kína vilja viðhalda miklum og góðum samskiptum, þar sem gagnkvæm ráðgjöf yrði fest enn frekar í sessi, sem og gagnkvæmt pólitískt traust. „Til þess að fást við afleiðingar fjármálakreppunnar ættu löndin tvö að leita leiða til að auka sjálfstraust markaða, víkka út tvíhliða viðskipti, ýta undir gagnkvæma fjárfestingu og dýpka enn samskipti á sviði menningar-, mennta- og ferðamála,“ er haft eftir Wen Jiabao. Forseti Íslands og kínverski forsætisráðherrann voru sammála um að leiðir landanna lægju saman á fjölda sviða, svo sem í orkunýtingu, baráttu við útblástur gróðurhúsalofttegunda, jarðvarma og jöklarannsóknum. - óká
Mest lesið Sagður hafa tæmt sjóði flokksins og rekur nýja stjórn úr húsnæðinu Innlent Greindi þátt almennings og fjölmiðla í máli „strokufangans“ Innlent Halla forseti blandar sér í götuljósaumræðuna Innlent Þúsundir syrgja í Tehran og Trump segir æðstaklerkinn ljúga Erlent Mikill viðbúnaður vegna eftirfarar á Sæbraut Innlent Reiða fram rúma milljón fyrir Jakub Innlent Allt að sautján stiga hiti í dag Veður Málið rannsakað sem tilraun til manndráps Innlent Telja Múmínlundinn klárt brot á höfundarétti Innlent Steini frá Straumnesi látinn Innlent Fleiri fréttir Átök í Sósíalistaflokknum, þinglokaviðræður og síðasti dagur Litlu kaffistofunnar Veiðigjöld ekki á dagskrá þingfundar í dag Gripinn við innbrot og bíl ekið inn í búð Greindi þátt almennings og fjölmiðla í máli „strokufangans“ Mikill viðbúnaður vegna eftirfarar á Sæbraut Sagður hafa tæmt sjóði flokksins og rekur nýja stjórn úr húsnæðinu Halla forseti blandar sér í götuljósaumræðuna Reiða fram rúma milljón fyrir Jakub Tilraun langtímakjarasamninga hafi mistekist Málið rannsakað sem tilraun til manndráps Telja Múmínlundinn klárt brot á höfundarétti Glænýr leikskóli í Mosfellsbæ heitir Sumarhús Verðbólguvonbrigði, hraðakstur og kokkur með keppnisskap Málið týndist í kerfinu og reyndist á endanum fyrnt Segulómtækið enn óvirkt og beðið eftir þúsund lítrum af helíni „Allar kannanir eru með einhverja óvissu“ Steini frá Straumnesi látinn Áfram frestað meðan formenn funda Birgir Ármannsson kominn með málflutningsréttindi Þingmenn ekki svo heppnir að fá tvöföld laun Standa saman gegn „óskiljanlegri“ ósk Vegagerðarinnar Helgi leiðir nefnd um atvinnumál í Norðurþingi Nú má heita Kareem Link Baggio og Anóra Vava Star Kerfið bilaði og atkvæði greidd upp á gamla mátann Ánægja með gjaldfrjálsar skólamáltíðir en fjármögnunin áskorun Verðbólga eykst og Alþingi í óvissu Gerðu úttekt á skrifstofu Ríkissáttasemjara Stærsti árgangur sögunnar fer í framhaldsskóla: „Það verður þétt setið í skólastofunni“ Flakk á fylginu og brunamótamatið vanáætlað Lögregla varar við „Nígeríubréfum“ og öðrum netglæpum Sjá meira