Guðrún enn spurningarmerki - viðræðurnar ekki komnar langt Boði Logason skrifar 23. janúar 2012 10:06 Hjálmar segir að óljóst sé hvort að Guðrún Pálsdóttir verði áfram bæjarstjóri í Kópavogi. „
Það er eitt af þessum málum sem þarf að fara virkilega vel yfir," segir Hjálmar Hjálmarsson, bæjarfulltrúi Næst besta flokksins í Kópavogi, aðspurður hvort að Guðrún Pálsdóttir haldi áfram sem bæjarstjóri. Nú um helgina hófust formlegar viðræður á milil Sjálfstæðisflokksins, Y-Lista Kópavogsbúa og Næst besta flokksins um að mynda nýjan meirihluta í bæjarstjórn. Meirihlutinn sprakk þegar segja átti Guðrúnu upp störfum. Hjálmar sagðist þá ekki geta unað við þau vinnubrögð sem einkenndu uppsögnina. Skömmu síðar gekk Listi Kópavogsbúa úr skaftinu. Nú um helgina funduðu flokkarnir þrír. „Þetta er í biðstöðu. Við vorum að leggja spilin á borðið og svo þurfa bæjarfulltrúar að tala við sitt fólk og meta stöðuna," segir Hjálmar í samtali við fréttastofu nú í morgun. „Það eru einhverjir hjallar sem þarf að komast yfir, við erum í rauninni að taka okkur fyrstu skref í þessu," segir hann. Aðspurður hvaða hjallar það eru, segir Hjálmar: „Ég myndi ekki fara tjá mig um það í miðjum viðræðum," segir Hjálmar. Ármann Kr. Ólafsson, oddviti sjálfstæðismanna í bænum, sagði í samtali við Vísi á föstudag að Sjálfstæðisflokkurinn myndi ekki gera kröfu um bæjarstjórastólinn. Hjálmar segir að í viðræðunum um helgina hafi verið rætt um hver skyldi gegna embætti bæjarstjóra en ekkert sé komið á hreint í þeim efnum. Óljóst er hvenær flokkarnir funda næst en það mun komast á hreint um hádegi.
Mest lesið Hvarf fyrir tæpum þrjátíu árum og fannst í hopandi jökli Erlent Fjarlægði nöfnin strax: „Ætlumst ekki til neins af þessu fólki“ Innlent Öryggismyndavélar í svefnherberginu og fyrsta útgáfa af Lolitu á skrifstofunni Erlent Segir Höllu ekki skilja um hvað málið snýst Innlent Dánarorsök Ozzy Osbourne ljós Erlent Tveggja bíla árekstur á Suðurlandi Innlent Segja Rafmennt auglýsa nöfn sín í blekkingarskyni Innlent Golfbolti hafnaði í manni „eftir óteljandi dæmi um óskiljanlega hegðun“ Innlent Hvar á að grípa niður í fækkun innflytjenda? Innlent Hættir að fjármagna þróun mRNA bóluefna Erlent Fleiri fréttir Fyrirlestri ísraelsks fræðimanns aflýst eftir skamma stund Golfbolti hafnaði í manni „eftir óteljandi dæmi um óskiljanlega hegðun“ Tveggja bíla árekstur á Suðurlandi Svartaþoka gerir þyrlusveit í útkalli erfitt fyrir Innkalla sælgæti vegna köfnunarhættu Fjarlægði nöfnin strax: „Ætlumst ekki til neins af þessu fólki“ Öryggissérfræðingur hefur trú á boðuðum aðgerðum í Reynisfjöru Segir Höllu ekki skilja um hvað málið snýst Færa sig í Kringluna vegna bílastæðaskorts og framkvæmda Tollastríð, makríll og flutningur Blóðbankans Greina ekki frá tilkynntum kynferðisbrotum á Þjóðhátíð strax Segja Rafmennt auglýsa nöfn sín í blekkingarskyni Sektaður vegna kýr sem drapst á leið í sláturhús Minnsti þéttleiki makríls síðan 2010 Tveir skjálftar yfir þrír að stærð Hvar á að grípa niður í fækkun innflytjenda? Blóðbankinn á leið í Kringluna Nokkuð um hávaðaútköll Segja upp og draga úr útgáfu: Óvissan í rekstrinum „því miður aukist mikið“ Lax ofan Stuðlagils gæti hafa veiðst lengst frá sjó á Íslandi Til skoðunar að hafa mannskap við vöktun í Reynisfjöru Herða öryggisreglur eftir slysið: „Þetta hafa verið mjög erfiðir dagar“ Flugeldum kastað að fólki á Akureyri Handtekin fyrir ölvunarakstur eftir grænt ljós frá löggunni Ráðstafanir í Reynisfjöru, tollar og lax á sjaldséðum slóðum Boðar fund um tolla Trumps og ESB Rauða ljósið mun blikka fyrr Enn má búast við gosmóðu þó eldgosinu sé lokið í bili Flutti lítra af kókaínvökva til landsins gegn greiðslu „Samstaða skapar samfélag“ er þema Hinsegin daga Sjá meira