Fagnar hertum reglum um klámefni Hafsteinn Hauksson skrifar 23. janúar 2012 12:01
Forstöðumaður Barnahúss fagnar nýju frumvarpi innanríkisráðherra sem flokkar bæði teiknimyndaklám og klám þar sem fullorðnir eru barngerðir sem barnaklám. Hann segir að þannig sé hægt að draga úr líkunum á barnamisnotkun í framtíðinni. Meðal þess sem gert er refsivert í frumvarpinu er að skoða hvers kyns barnaklám yfir höfuð, en áður var aðeins framleiðsla þess, varsla og dreifing ólögleg. Í ofanálag hefur skilgreining barnakláms verið rýmkuð nokkuð verulega, svo hvers konar klám sem líkir eftir börnum flokkast sem slíkt, jafnvel þótt einstaklingarnir í klámefninu séu orðnir átján ára eða klámefnið sé teiknað. „Barngerving er þegar verið er að skírskota til barna í klámmyndum með fullorðnum," segir Ólöf Ásta Farestveit. „Það getur verið með hegðun, klæðnaði á borð við skólabúninga og svo framvegis. Það er verið að rýmka þetta til að draga enn skýrari mörk þarna á milli; að vera ekki að taka börn inn í klámveröldina sem slíka, sem skiptir gríðarlega miklu máli." Ólöf Ásta, sem er afbrotafræðingur og forstöðumaður barnahúss, segir ástæðuna fyrir þessu vera þá að neysla kláms með skírskotun til barna geti leitt til mun alvarlegri brota, og skrefið yfir í að leita í hreinræktað barnaklám verði styttra. „Með því að vera stanslaust að skoða eitthvað sem skírskotar til barna, þá ertu að ýta undir ákveðnar hvatir sem gætu annars legið í dvala. Síðan getur verið spurning um hvað gerist þegar þú ert einn með barni þegar þú ert búinn að horfa á svona efni í ákveðið langan tíma, og hvaða togstreita á sér stað í höfðinu á þessum fullorðna einstaklingi áður en hann misnotar barnið." Skilin á milli löglegs og ólöglegs kláms verði þó væntanlega óskýr, en á endanum verði dómstólanna að ákvarða hana. Á endanum sé verið að verja börn og hugsanlega þolendur framtíðarinnar. „Áður fyrr héldu menn að ef einstaklingur væri að skoða barnaklám, þá myndi það hindra hann í að ganga lengra. Í raun og veru hefur það öfug áhrif - þegar þú skoðar barnaklám eru meiri líkur á að þú farir að misnota börn í kjölfarið heldur en annars." Innanríkisráðherra vonast til að hægt verði að afgreiða frumvarpið á yfirstandandi þingi, en það bíður nú fyrstu umræðu.
Mest lesið Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Innlent Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á hóteli í miðbænum Innlent Munu verja hagsmuni sína á norðurslóðum „með öllum ráðum“ Erlent Kynna úrræði sem eigi að liðka fyrir kjarasamningum Innlent Hálft ár fyrir ræktun á þriðja hundrað kannabisplantna Innlent „Hér var enginn glæpur og ekki heldur gáleysi“ Innlent Minningarstundir vegna andlátanna Innlent Ætli að leggja áherslu á bókun 35 Innlent Fleiri fréttir Lægð nálgast og hviður geta orðið bílum skeinuhættar Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða „Hér var enginn glæpur og ekki heldur gáleysi“ Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á hóteli í miðbænum Tvær líkamsárásir í miðbæ í nótt Hálft ár fyrir ræktun á þriðja hundrað kannabisplantna Kynna úrræði sem eigi að liðka fyrir kjarasamningum „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Allir níu áfram í haldi Mátti ekki gefa blóð í gær en gerði það í dag Staðan hafi ekki verið betri á þessari öld Halla verður viðstödd útför Haraldar Ætli að leggja áherslu á bókun 35 Viðreisn tapar fylgi Sigríður Þorvaldsdóttir látin Hópuppsögn á sviði heilsu- og líkamsræktar Minningarstundir vegna andlátanna Þorgerður sinnir starfi sveitarstjóra í eitt ár Andarnefja í andarslitrunum á Djúpavogi Báðar fylkingar eyddu milljónum í samfélagsmiðlaauglýsingar Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Byrjað að leggja Borgarlínu við Nauthólsveg Svekktir og reiðir stjórnendur komu saman við Ráðhúsið Komugjald lagt á: „Þetta er auðvitað ekkert annað en skattlagning“ SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Norðausturland fær loks langþráðan veg Tjón vegna skemmdarverka hlaupi á milljónum Rætt við vitni að banaslysinu og eldri borgarar ósáttir með skattahækkun Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Rún frá Veitum til Þorgerðar Katrínar Sjá meira