Ónýtu sílíkonpúðarnir mesta áfall ferilsins 7. janúar 2012 19:30
Lýtalæknirinn, sem flutti inn PIP sílikon púðana hingað til lands, segir málið mesta áfall sem hann hafi lent í á ævinni fyrir utan veikindi konu sinnar. Hvarflað hafi að honum að hætta störfum. Um fjögur hundruð íslenskar konur eru með sílikonpúða frá franska framleiðandanum PIP. Jens Kjartansson, lýtalæknir, framkvæmdi aðgerðir á nær öllum þessum fjögur hundruð konunum á árunum 2000 til 2010 á skurðstofu í Domus medica. Hann flutti einnig sjálfur sílikonpúðana inn til landsins og í örfáum tilvikum lánaði hann PIP sílikonpúða til félaga sinna á skurðstofunni. Jens baðst undan sjónvarpsviðtali þegar eftir því var leitað en féllst á að veita fréttastofu símaviðtal. Jens er yfirlæknir lýtalækninga á Landspítalanum og segir hann óvíst hvaða áhrif málið hafi á starf sitt á spítalanum. „Þetta er náttúrulega mesta áfall sem ég hef lent í á ævinni fyrir utan veikindi konunnar minnar. Þetta hefur bara áhrif á mig sem persónu og ég náttúrulega verð bara að reyna að vinna úr því. Maður verður að reyna að taka á því sem rekur á manns eign fjörur. Auðvitað er ég ótrúlega leiður yfir þessu og finnst þetta ömurlegt í alla staði en hvort að ég hætti að vinna sem læknir eða hvað ég geri í framhaldi er ennþá bara opið," segir Jens Kjartansson, lýtalæknir. Hann segir málið hafa skaðað sinn feril og hefur hann velt fyrir sér að hætta að starfa sem lýtalæknir. „Það hefur hvarlað að mér já að hætta bara þessu en ég er nú ekki viss um að ég geri það samt. Vegna þess að ég get ekki sagt það að ég upplifi það þannig að þetta sé mér að kenna. Mér finnst ég vera meira fórnarlamb aðstæðna eins og þetta mál hefur allt komið upp," segir Jens.
Mest lesið „Skiljum mjög vel að þetta sé erfitt fyrir íbúana í hverfinu“ Innlent Hinn grunaði í sverðaárásinni í Fagersta í Svíþjóð nafngreindur Erlent Vilja að aldursviðmið um börn í vopnalögum verði uppfærð Innlent Fimm hundruð milljóna króna viðhald á dagskrá Innlent Heilsu Haralds konungs hrakar Erlent Gagnrýnir viðbragð lögreglu eftir áhlaup ungmenna Innlent Hótar að flytja aftur til Færeyja gangi Ísland í ESB Innlent Sakamálið sem skekur Bandaríkin Innlent Tvö útköll á svipuðum slóðum á hálendinu með stuttu millibili Innlent Ráðherra byrjar með hlaðvarp Innlent Fleiri fréttir „Skiljum mjög vel að þetta sé erfitt fyrir íbúana í hverfinu“ Fimm hundruð milljóna króna viðhald á dagskrá Vilja að aldursviðmið um börn í vopnalögum verði uppfærð Malbika Vesturlandsveg og stýra umferð á meðan Tvö útköll á svipuðum slóðum á hálendinu með stuttu millibili Tilkynnt um heimilisofbeldi í Reykjavík og Hafnarfirði Vaxtaákvörðunin hafi ekki verið rædd Gagnrýnir viðbragð lögreglu eftir áhlaup ungmenna Ráðherra byrjar með hlaðvarp Höfðu afskipti af á fjórða tug unglinga vegna drykkju „Ætlar hann að segja já eða nei?“ Hótar að flytja aftur til Færeyja gangi Ísland í ESB Hvað gerist á fasteignamarkaði ef við göngum í ESB? Nei eða já frá ólíkum sjónarhornum á Sprengisandi Þrír handteknir eftir árás þar sem eggvopnum og hnúajárni var beitt Mikil ungmennadrykkja á Menningarnótt og tveimur skemmtistöðum lokað Hiti á fundi borgarráðs vegna breytinga á matarþjónustu Báðar þyrlur og flugvél gæslunnar á loft samtímis Sakamálið sem skekur Bandaríkin Allt gengið vel og „ekkert að fara að klikka“ Bíllinn fannst skammt frá en þjófarnir eru ófundnir Handalögmál milli öryggisvarðar og þjófs Límmiðar lifðu ekki af nóttina Segir augljóst að lögum hafi ekki verið framfylgt við kyrrsetninguna Segja Morgunblaðið leggja þeim orð í munn Björguðu veikum göngumanni í kílómetrahæð á Fimmvörðuhálsi Skipunartíminn lengdur án auglýsingar Engin þjónusta: „Staðan er náttúrulega grafalvarleg á þessu svæði“ Bændur órólegir vegna skorts á dýralæknum Aftur í skólastjórastólinn Sjá meira