Bæjarfulltrúi verður ekki bæjarstjóri 17. janúar 2012 06:00 Guðríður Arnardóttir
Næsti bæjarstjóri í Kópavogi kemur ekki úr hópi kjörinna fulltrúa. Þetta segir Guðríður Arnardóttir, oddviti Samfylkingarinnar í bæjarstjórn Kópavogs, að hafi verið niðurstaða meirihlutafundar bæjarstjórnar síðdegis í gær. Ekki hefur enn verið ákveðið hvernig verður staðið að ráðningu næsta bæjarstjóra eða hver það kynni að verða. „Við reynum að taka um það ákvörðun á allra næstu dögum," segir Guðríður. Guðríður tilkynnti Guðrúnu Pálsdóttur, fráfarandi bæjarstjóra, síðastliðinn föstudag að meirihlutinn hefði hug á að ráða nýjan bæjarstjóra. Guðrún er hins vegar enn starfandi bæjarstjóri. „Við eigum hins vegar eftir að funda með bæjarstjóra og ýmis mál sem við eigum eftir að ræða. Þangað til að sá fundur hefur farið fram þá ætlum við ekki að tjá okkur um hennar starfslok eða orsakir þeirra," segir Guðríður. Að mati Guðríðar kom vel til greina að hún tæki sjálf við embættinu sem oddviti stærsta flokksins í meirihlutasamstarfinu, en Listi Kópavogsbúa hafi viljað ópólitískan bæjarstjóra. „Og það skiptir okkur mjög miklu máli að þessi meirihluti starfi saman út kjörtímabilið," segir hún og vísar til margvíslegra verkefna sem ríði á að ljúka, svo sem stjórnsýsluumbóta sem séu byrjaðar, en hvergi nærri lokið. - óká
Mest lesið Inga Dögg lést á Skorradalsvatni Innlent Þrír flokkar skipa efstu sætin í nær öllum kjördæmum Innlent „Í versta falli alvarleg forréttindablinda“ Innlent Taldi að vegabréfinu hefði verið stolið við Skógafoss Innlent Lögregla með virkt eftirlit við afmæli Hell's Angels Innlent Handtekinn eftir að rottueitur fannst í barnamat Erlent Lögðu hald á eggvopn og fíkniefni en handtóku engan Innlent Æðsti yfirmaður NASA: „Fylgjandi því að gera Plútó aftur að reikistjörnu“ Erlent „Þitt vandamál er að þú skilur ekki stéttarfélög“ Innlent Töluverður viðbúnaður lögreglu í Kópavogi Innlent Fleiri fréttir Sinueldur á Kjalarnesi „Þitt vandamál er að þú skilur ekki stéttarfélög“ Gervigreindin gæti haft áhrif á ESB-atkvæðagreiðsluna Brotthvarf bandarískra hermanna veiki ekki NATO í Evrópu Eftirlit lögreglu og utanríkisráðherra um breytingar á herafla í Þýskalandi Inga Dögg lést á Skorradalsvatni Lögðu hald á eggvopn og fíkniefni en handtóku engan Verkalýðsfélög, gervigreind og Landeyjahöfn í Sprengisandi Fjórir handteknir vegna fjögurra líkamsárása Lögregla með virkt eftirlit við afmæli Hell's Angels Þrír flokkar skipa efstu sætin í nær öllum kjördæmum „Í versta falli alvarleg forréttindablinda“ Katla kjörin forseti Stúdentaráðs Töluverður viðbúnaður lögreglu í Kópavogi Taldi að vegabréfinu hefði verið stolið við Skógafoss „Þetta á náttúrulega ekki að gerast“ „Mjög gott að við höfum náð að slíðra sverðin“ Vinna að spálíkani til að skima sjálfvirkt fyrir vannæringu Beint: Pallborð Leigjendasamtakanna um húsnæðismál Glapræði að fella niður einu ferð dagsins: „Er öllum sama þó Grímsey fari í eyði?“ Það geti ekki hvaða skip sem er dýpkað í mynni Landeyjahafnar „Flokkur fólksins tekur í rauninni út óánægju með ríkisstjórnina“ Óska þess að ákvörðun um spítalann liggi fyrir sem fyrst Meirihlutinn á þingi fallinn, gremja í Grímsey og risadagur í íþróttunum Gulu hjólunum stillt upp á slysstöðum Verkalýðsfélögin úrelt og þau hefði mátt leggja niður um aldamótin Beittir lögreglutökum eftir ógnandi tilburði í miðbæ Fjöldi viðbragðsbíla kom á vettvang falsboðs Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Farfuglar koma marktækt fyrr til landsins en áður Sjá meira