Orð um þorskkvóta misskilin 17. janúar 2012 09:00 Steingrímur J. Sigfússon
Steingrímur J. Sigfússon, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, segir menn hafa lesið vitlaust í orð hans í útvarpsþættinum Sprengisandi á Bylgjunni á sunnudag um horfur í sjávarútvegi. „Ástandið í þorskinum er gott og þar mun kvótinn vera aukinn í vor – aftur,“ sagði Steingrímur í viðtali við þáttastjórnandann Sigurjón M. Egilsson um horfurnar í efnahags- og atvinnumálum þjóðarinnar. Þetta hefur í fréttum verið haft til marks um það að óvæntar fréttir væru boðaðar um veiðar á þorski – mikilvægustu fisktegund íslensks sjávarútvegs. „Ég var ekki að boða neitt slíkt, heldur að vitna til þess að horfurnar væru jákvæðar. Ákvörðun um þorskkvóta komandi fiskveiðiárs verður hins vegar tekin í vor- eða sumarbyrjun,“ segir Steingrímur. Ráðherra segir að líklegt megi telja að þorskkvóti verði aukinn á næsta fiskveiðiári, ef horft er til niðurstaðna úr rannsóknum Hafrannsóknastofnunar og þeirrar ráðgjafar sem var kynnt í júní síðastliðnum. „Ég setti nú þessa aflareglu í samband aftur þegar ég var í ráðuneytinu 2009. Hún hefur gefist vel og við erum ekkert að fara út af sporinu með það,“ segir Steingrímur. Hér vísar ráðherra til þess að í júní 2009 var aflaregla tekin upp en hún gildir fyrir næstu fimm ár. Með henni er stefnt að veiðum á 20% af þorski 4 ára og eldri. - shá
Mest lesið Simmi lýsir áralöngu umsáturseinelti: Sat um hann í bílakjallara Innlent Tollarnir tilefni til hvorra tveggja örvæntingar og léttis Innlent Styttan tekin niður eftir harðar deilur um klúran barm Erlent Vörðuóðir ferðamenn fremji náttúruspjöll Innlent Tveir fluttir með þyrlunni og fjórir með sjúkrabíl Innlent Þrýstu á yngsta sakborninginn um að taka á sig alla sök Innlent Segist eiga fund með Pútín Erlent Ekki eigi að gera einstaklinga ábyrga fyrir gerðum ríkisstjórnar Innlent Fjarlægði nöfnin strax: „Ætlumst ekki til neins af þessu fólki“ Innlent Húsvíkingur á Norðurpólnum segir sögu merkustu landkönnuða 20. aldar Innlent Fleiri fréttir Tollarnir tilefni til hvorra tveggja örvæntingar og léttis Simmi lýsir áralöngu umsáturseinelti: Sat um hann í bílakjallara Tveir fluttir með þyrlunni og fjórir með sjúkrabíl Vörðuóðir ferðamenn fremji náttúruspjöll Húsvíkingur á Norðurpólnum segir sögu merkustu landkönnuða 20. aldar Þrýstu á yngsta sakborninginn um að taka á sig alla sök Ákvörðun ráðherra muni seinka viðbragði við faröldrum framtíðar Þyrlan aftur á leið austur vegna umferðarslyss Ekki eigi að gera einstaklinga ábyrga fyrir gerðum ríkisstjórnar Tollahækkanirnar vonbrigði og þrýstir á um fund sem fyrst Forsætisráðherra ósátt með tolla og pólfarar á Húsavík Fyrirlestri ísraelsks fræðimanns aflýst eftir skamma stund Golfbolti hafnaði í manni „eftir óteljandi dæmi um óskiljanlega hegðun“ Tveggja bíla árekstur á Suðurlandi Svartaþoka gerir þyrlusveit í útkalli erfitt fyrir Innkalla sælgæti vegna köfnunarhættu Fjarlægði nöfnin strax: „Ætlumst ekki til neins af þessu fólki“ Öryggissérfræðingur hefur trú á boðuðum aðgerðum í Reynisfjöru Segir Höllu ekki skilja um hvað málið snýst Færa sig í Kringluna vegna bílastæðaskorts og framkvæmda Tollastríð, makríll og flutningur Blóðbankans Greina ekki frá tilkynntum kynferðisbrotum á Þjóðhátíð strax Segja Rafmennt auglýsa nöfn sín í blekkingarskyni Sektaður vegna kýr sem drapst á leið í sláturhús Minnsti þéttleiki makríls síðan 2010 Tveir skjálftar yfir þrír að stærð Hvar á að grípa niður í fækkun innflytjenda? Blóðbankinn á leið í Kringluna Nokkuð um hávaðaútköll Segja upp og draga úr útgáfu: Óvissan í rekstrinum „því miður aukist mikið“ Sjá meira