Mikil sprengihætta við Hestfjörð 17. janúar 2012 06:45 Mynd: Hafþór.
Mikil sprengihætta er við Hestfjörð, við sunnanvert Ísafjarðardjúp, eftir að olíubíll frá Skeljungi, með 39 þúsund lítra af bensíni, snérist í tvo eða þrjá hringi á glerhálku í gærkvöldi, uns vagninn með bensíngeyminum hafnaði ofan vegar á hvolfi og dráttarbíllinn ofan á honum. Ökumaðurinn slapp lítið meiddur en var fluttur á sjúkrahúsið á Ísafirði til aðhlynningar. Ekki kom gat á geyminn, en bensín tók þó að vætla úr ventlum á honum og alveg niður í sjó. Veginum var þegar í stað lokað og allir tiltækir slökkviliðsbílar og sjúkrabílar sendir á vettvang ásamt kranabíl og þremur olíubílum, til hægt verði að dæla bensíninu úr oltna bílnum. Vegagerðin sandbar vegi og vettvang, en þar var vart stætt fyrir hálku. Kvoðu var svo úðað yfir bílinn og vagninn og undir morgun tókst slökkviliðsmönnum að aftengja rafmeyma bílsins og fjarlægja þá, þannig að dregið hefur úr mestu sprengihættunni. Bensínfnykur er þó á vettvangi og sést brák út frá fjörunni fyrir neðan slysstaðinn. Rétt fyrir klukkan sjö var byrjað að dæla bensíni úr bílnum yfir í hina olíubílana en búist er við að Djúpvegur verði lokaður í þó nokkrar klukkustundir í viðbót. Að sögn slökkviliðsmanns var það lán í óláni að bíllinn skyldi hafna ofan vegar en ekki fara sjávarmegin út af háum kanti og hafna í grýttri fjörunni.
Mest lesið Öryggismyndavélar í svefnherberginu og fyrsta útgáfa af Lolitu á skrifstofunni Erlent Hvarf fyrir tæpum þrjátíu árum og fannst í hopandi jökli Erlent Dánarorsök Ozzy Osbourne ljós Erlent Segir Höllu ekki skilja um hvað málið snýst Innlent Segja Rafmennt auglýsa nöfn sín í blekkingarskyni Innlent Hvar á að grípa niður í fækkun innflytjenda? Innlent Fjarlægði nöfnin strax: „Ætlumst ekki til neins af þessu fólki“ Innlent Hættir að fjármagna þróun mRNA bóluefna Erlent Segja upp og draga úr útgáfu: Óvissan í rekstrinum „því miður aukist mikið“ Innlent Greina ekki frá tilkynntum kynferðisbrotum á Þjóðhátíð strax Innlent Fleiri fréttir Innkalla sælgæti vegna köfnunarhættu Fjarlægði nöfnin strax: „Ætlumst ekki til neins af þessu fólki“ Öryggissérfræðingur hefur trú á boðuðum aðgerðum í Reynisfjöru Segir Höllu ekki skilja um hvað málið snýst Færa sig í Kringluna vegna bílastæðaskorts og framkvæmda Tollastríð, makríll og flutningur Blóðbankans Greina ekki frá tilkynntum kynferðisbrotum á Þjóðhátíð strax Segja Rafmennt auglýsa nöfn sín í blekkingarskyni Sektaður vegna kýr sem drapst á leið í sláturhús Minnsti þéttleiki makríls síðan 2010 Tveir skjálftar yfir þrír að stærð Hvar á að grípa niður í fækkun innflytjenda? Blóðbankinn á leið í Kringluna Nokkuð um hávaðaútköll Segja upp og draga úr útgáfu: Óvissan í rekstrinum „því miður aukist mikið“ Lax ofan Stuðlagils gæti hafa veiðst lengst frá sjó á Íslandi Til skoðunar að hafa mannskap við vöktun í Reynisfjöru Herða öryggisreglur eftir slysið: „Þetta hafa verið mjög erfiðir dagar“ Flugeldum kastað að fólki á Akureyri Handtekin fyrir ölvunarakstur eftir grænt ljós frá löggunni Ráðstafanir í Reynisfjöru, tollar og lax á sjaldséðum slóðum Boðar fund um tolla Trumps og ESB Rauða ljósið mun blikka fyrr Enn má búast við gosmóðu þó eldgosinu sé lokið í bili Flutti lítra af kókaínvökva til landsins gegn greiðslu „Samstaða skapar samfélag“ er þema Hinsegin daga Strangari reglur og ný gjaldskrá til að „tempra kraftmikla fólksfjölgun“ Neyddur til að taka ketamín og sjónvarpi kastað í höfuð hans Tollar Trumps muni hafa tilætluð áhrif Sendir „dylgjur“ Haralds aftur til föðurhúsanna Sjá meira