Konur með PIP-púða bíða enn 17. janúar 2012 12:01
Konur með PIP-púða geta enn ekki pantað sér tíma í skimun hjá Leitarstöð Krabbameinsfélagsins til að láta athuga hvort púðarnir eru rifnir. Ástæðan er að þær hafa ekki fengið formlegt bréf með gögnum frá lýtalækni sínum og velferðarráðuneytinu. Tæpar þrjár vikur eru síðan gefið var út á vef Landlæknisembættisins að lýtalæknar sem hefðu notað PIP-púðana myndu senda viðkomandi konum bréf með nánari upplýsingum og ráðgjöf. Jens Kjartansson lýtalæknir er sá sem mest notaði púðana. Þar sem hann einn hefur upplýsingar um hvaða konur fengu púðana hjá honum hafa heilbrigðisyfirvöld ekki getað sett sig í samband við þessar konur. Jens er nú í veikindaleyfi en þær upplýsingar fengust hjá framkvæmdastjóra Domus medica, þar sem Jens er með einkastofu, að Jens hafi enn ekki sent út bréfin því hann sé að bíða eftir gögnum frá velferðarráðuneytinu sem eigi að fylgja með. Þar er meðal annars átt við aðgerðaáætlun stjórnvalda vegna PIP-málsins, sem raunar var birt í síðustu viku á vef ráðuneytisins. Það sem vantar upp á eru nánari upplýsingar til kvenna um skimunina, ensamkvæmt aðgerðaáætlun stjórnvalda fá konur með PIP-púða skimun, þeim að kostnaðarlausu, hjá Leitarstöð Krabbameinsfélags Íslands. Konur með PIP-púða geta hins vegar enn ekki pantað sér tíma í skimun því þær hafa ekki fengið umrætt bréf. Samkvæmt upplýsingum frá ráðuneytinu verða upplýsingar sendar til lýtalækna á allra næstu dögum.
Mest lesið Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Innlent „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Innlent Svínum sleppt út í Saltvík Innlent Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Innlent „Þetta er smjörklípa“ Innlent Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á hóteli í miðbænum Innlent Fleiri fréttir Svínum sleppt út í Saltvík „Þetta er smjörklípa“ Minningarstundir og ESA undirbýr dómsmál Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Aðild að ESB hafi aldrei verið markmið í sjálfu sér Einn grunaður um íkveikju á Center Hotel Skjaldbreið Bruninn mikið áfall og tjónið líklega verulegt í versluninni Um þriðjungur þjóðarinnar horfði á síðasta fréttatímann Flúði hótelherbergið vegna brunans og gleymdi tönnunum Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Eldri borgarar fái sanngjarnari tekjur þrátt fyrir aukin gjöld Gestir fluttir á önnur hótel vegna skemmda eftir brunann Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Lægð nálgast og hviður geta orðið bílum skeinuhættar Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða „Hér var enginn glæpur og ekki heldur gáleysi“ Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á hóteli í miðbænum Tvær líkamsárásir í miðbæ í nótt Hálft ár fyrir ræktun á þriðja hundrað kannabisplantna Kynna úrræði sem eigi að liðka fyrir kjarasamningum „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Allir níu áfram í haldi Mátti ekki gefa blóð í gær en gerði það í dag Staðan hafi ekki verið betri á þessari öld Halla verður viðstödd útför Haraldar Ætli að leggja áherslu á bókun 35 Viðreisn tapar fylgi Sigríður Þorvaldsdóttir látin Hópuppsögn á sviði heilsu- og líkamsræktar Sjá meira