Innlent

Jens segist aldrei hafa svikið undan skatti

Jens Kjartansson lýtalæknir
Jens Kjartansson lýtalæknir
Jens Kjartansson lýtalæknir segir að hann hafi ekki svikið undan skatti og að allar þær konur sem greiddu fyrir sílikonaðgerðir með reiðufé hafi fengið nótu fyrir aðgerðinni.

Í fréttum Stöðvar 2 þann 12. janúar síðastliðinn var sagt frá því að velferðarráðuneytið skoði nú innflutning og notkun á PIP-púðunum. Í fréttatímanum var sagt að starfsfólk ráðuneytisins fengið ábendingar um að rekstur Jens hafi ekki verið í samræmi við skattalög. Samkvæmt heimildum fréttastofu hafi komið fimm til sex ábendingar frá „þannig aðilum að framhjá þeim verði ekki litið."

Jens var gestur í Kastljósi í kvöld. Hann sagði að það væri ekki rétt að hann hefði svikið undan skatti. Hann var spurður að því hvort að hann hefði tekið við greiðslum í bein hörðum peningum.

„Það er þannig Sigmar, að aðgerðin kostar ákveðið. Og fólk kemur til aðgerðir og það greiðir ýmist með raðsamningum, korti eða peningum. Þetta er bara gjaldmiðill og ég tek á móti því eins og öllu öðru. En allar þessar konur fengu kvittun og ég veitti aldrei neinn afslátt af verði aðgerðarinnar þó svo að það hafi verið greitt með peningum," sagði Jens í Kastljósinu í kvöld.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×