Innlent

Samkomulag í augsýn á Alþingi

Eftir mikil fundahöld virðist samkomulag vera í augsýn á Alþingi um þinglok. Enn er verið að funda um málið í þinghúsinu en samkvæmt heimildum fréttastofu er líklegt að frumvarp um veiðigjöld verði samþykkt á morgun.

Gangi samningar stjórnar og stjórnarandstöðu eftir munu verða gerðar nokkrar breytingar á frumvarpinu þannig að veiðigjöld skili þjóðarbúinu um 13,2 milljörðum. Stjórnarandstaðan hafði farið fram á lækkun þannig að gjöldin myndu skila 11 milljörðum en stjórnarflokkarnir vildu að þau myndu skila 15 milljörðum.

Í samkomulaginu, verði það samþykkt, felst einnig að frumvarpi um fiskveiðistjórnun verði frestað fram á haust og sama er að segja um rammaáætlun.

Verði þetta raunin munu þingmenn fara í sumarfrí eftir morgundaginn og hittast á ný á haustþingi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×