Innlent

Mörður aflífaður á dýraspítala

mynd/afp
Loðdýr af marðarætt, sem kom til landsins með Norrænu á dögunum, er komið í leitirnar. Í tilkynningu frá lögreglu segir að dýrið hafi fundist við húsleit á höfuðborgarsvæðinu í morgun. Mörðurinn var tekinn í vörslu lögreglu sem flutti hann á dýraspítala þar sem "viðeigandi ráðstafanir“ voru gerðar, eins og það er orðað.

Merðinum var smyglað til landsins með Norrænu og greinir Morgunblaðið frá því í dag að smyglarinn hafi verið handsamaður strax við komuna til landsins. Hann hafi þá fengið að fara aftur um borð í skipið með dýrið, en skömmu síðar hafi hann stokkið frá borði með mörðinn og látið sig hverfa.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×