Kirkjuráð í samstarf um miðaldakirkju 7. maí 2012 05:00 Kirkjuráð mun taka þátt í undirbúningi endurreisnar miðaldakirkju við Skálholt. Hugmyndir að útliti kirkjunnar byggja á fornleifarannsóknum. Myndir/VSÓ Ráðgjöf
Kirkjuráð ákvað á síðasta fundi sínum að ganga til samstarfs um endurreisn miðaldadómkirkju í Skálholti, en hugmynd þess efnis var kynnt á kirkjuþingi í nóvember síðastliðnum. Hugmyndir aðstandenda gera ráð fyrir að kirkjan verði sjálfstætt menningar- og sýningarhús og muni auka enn gildi Skálholts sem viðkomustaðar ferðamanna. Kirkjuráð samþykkti á fundinum, sem var haldinn fyrir rúmri viku, að vinna skuli deiliskipulag fyrir Skálholt þar sem gert verði ráð fyrir miðaldadómkirkju. Hún skuli þó staðsett „þannig að vel fari“. Þá verði mynduð sjálfseignarstofnun um eignarhald á kirkjunni, skilyrði er að kostnaðaráætlanir og fjármögnun stofnkostnaðar liggi fyrir áður en samþykkt verði að fara út í verklegar framkvæmdir. Loks tekur Kirkjuráð fram að kirkjan muni ekki taka fjárhagslegan þátt í verkefninu og beri ekki áhættu af því að öðru leyti en því að kosta gerð deiliskipulags. Guðjón Arngrímsson upplýsingafulltrúi Icelandair er einn af aðstandendum verkefnisins, en hann segir í samtali við Fréttablaðið að ánægjulegt sé að þetta skref hafi verið tekið. Margt sé þó enn óunnið. „Þessi samþykkt er staðfesting á því að halda eigi þessari vinnu áfram. Nú munum við fá að verkefninu fagfólk á ýmsum sviðum, svo sem byggingasögu og arkitektúr, en það er töluverð vinna eftir þar til ákveðið verður hvort byggingin rís.“ Kristján Valur Ingólfsson vígslubiskup í Skálholti segir næsta skref í málinu vera að breyta deiliskipulagi fyrir Skálholt. „Það lá fyrir að það þurfti að fara í breytingar á deiliskipulagi af ýmsum ástæðum, en stærsta spurningin er að sjálfsögðu hvar byggingin verði staðsett. Í deiliskipulagsvinnunni verður gerð tillaga, jafnvel fleiri en ein, svo fer þetta í eðlilegt ferli þar sem kallað verður eftir viðbrögðum við hugmyndinni. Málið er þess vegna að segja má enn á byrjunarreit, en nú getur vinnan hafist.“ Kristján segir lykilmál að sátt náist um fyrirhugaða byggingu. „Langflestir sem eru komnir til vits og ára hafa skoðun á því hvað á að vera í Skálholti og ekki, þannig að það þarf að vera breið samstaða um allt sem ákveðið er.“ Ekki liggja enn fyrir endanlegar teikningar af kirkjunni, en Kristján segir væntanlega útfærslu munu haldast í hendur við skipulagsvinnuna og ekki skýrast fyrr en tillögur úr þeirri vinnu liggja fyrir. thorgils@frettabladid.is
Mest lesið Virðist skipta máli hvaða stöðu fólk gegni Innlent Sömdu um reglulegar samfarir í ár eftir sambúðarslit Innlent Sektuð um 23 þúsund krónur vegna tréspíramálsins Erlent „Sprengjuflugvélar er ógnin sem við sjáum hér“ Innlent ICE dregur saman seglin í Minneapolis Erlent Ósammála um að það sé kostur að vera formaður utan þings Innlent „Eins og við séum komin aftur á 1. mars 1989“ Innlent Skoða að leigja hótel til að létta undir með bráðamóttökunni Innlent Átta ára dómur Sigurðar Ragnars staðfestur Innlent Tengslanet veikara og andleg líðan verri í dag en fyrir rýmingu Innlent Fleiri fréttir Virðist skipta máli hvaða stöðu fólk gegni Ósammála um að það sé kostur að vera formaður utan þings Tengslanet veikara og andleg líðan verri í dag en fyrir rýmingu „Sprengjuflugvélar er ógnin sem við sjáum hér“ „Eins og við séum komin aftur á 1. mars 1989“ Vinnur fallega muni úr íslenskum trjám ASÍ og SA telja stjórnvöld á villigötum Jákvæð skref hafi verið tekin í vinnuhópi um málefni Grænlands Forstjóri í beinni, herþotur og bjór á vellinum Stúlkan er fundin Skoða að leigja hótel til að létta undir með bráðamóttökunni Ingibjörg fljót að rífa upp boxhanskana Hækkuðu gjaldið í skugga stúdentamótmæla Bjórinn nú leyfður á vellinum Íhugar að bjóða fram til varaformanns Sömdu um reglulegar samfarir í ár eftir sambúðarslit Lýsa eftir bíl sem var stolið fyrir utan Landspítalann Rafmagnslaust á Siglufirði Ríkisfjármálaleg tímasprengja, mistök eða tímabært réttlætismál? Átta ára dómur Sigurðar Ragnars staðfestur Vísbendingar um gerviverktöku í geiranum Hálf-íslenskur hermaður hluti af sænsku herflugsveitinni Mikið svifryk þrátt fyrir rykbindingu Blikkuðu í klukkustundir vegna skaddaðs jarðstrengs Samtök atvinnulífsins höfðu betur í Félagsdómi Fékk „hjálp“ frá heilbrigðiseftirlitinu til að velja sig sjálfa Baráttan um formannsembætti Framsóknar Viðbrögð Ölmu mikil vonbrigði Lýsa miklum vonbrigðum með viðbrögð Ölmu Vilja ráðast í breytingar á gamla bandaríska sendiráðinu Sjá meira