Hanna Birna ekki í formanninn í bili BBI skrifar 26. nóvember 2012 17:44 Hanna Birna Kristjánsdóttir fékk ríflega 72% atkvæða í fyrsta sæti í prófkjörinu um helgina. Mynd/Arnþór
Hanna Birna Kristjánsdóttir, frambjóðandi Sjálfstæðisflokksins, ætlar ekki í formannsframboð á næsta Landsfundi Sjálfstæðismanna í febrúar. Hún þótti koma einna best út úr prófkjöri Sjálfstæðisflokksins um helgina og er hæstánægð með stuðninginn sem hún túlkar sem ákall almennings um breytingar í stjórnmálum. Hanna Birna var gestur í útvarpsþættinum Reykjavík Síðdegis á Bylgjunni í dag. Þar rifjaði hún upp að það er ekki nema ár síðan hún fór í formannsframboð gegn sitjandi formanni flokksins. Þá bauð hún sig gagngert fram til að gefa sjálfstæðismönnum val um hver leiddi flokkinn í komandi Alþingiskosningum. „Bjarni Benediktsson vann þær kosningar. Mér finnst að það eigi að virða það svo ég er ekki að fara í framboð gegn sitjandi formanni aftur í febrúar," sagði Hanna Birna. Hún útilokar þó ekki að bjóða sig fram til formanns á einhverjum tímapunkti. Hanna Birna fékk ríflega 72% atkvæða í fyrsta sætið. Hún segist standa fyrir ný vinnubrögð í stjórnmálum og túlkar því stuðninginn sem hún hlaut í prófkjörinu sem ákall almennings um breytingar. „Ég vil að menn leggi meiri áherslu á sátt heldur en stöðug átök," segir hún og mun leggja áherslu á að vinna með öllum að málefnum almennings, óháð flokkslínum. Hanna Birna hlakkar að eigin sögn mikið til að byrja að vinna með fólkinu á listum Sjálfstæðisflokksins. Hún telur að niðurstöður prófkjörsins sýni að Sjálfstæðisflokkurinn sé ekki hræddur við breytingar. „Almenningur vil blöndu af reynslu og endurnýjun," sagði hún. Hanna Birna er ekki frá því að Sjálfstæðisflokkurinn hafi með árunum fjarlægst grunngildi flokksins. „Það á við um alla stjórnmálaflokka. Stjórnmálin eru orðin þannig að almenningur hefur ekki traust á þeim. Það þýðir ekki að hugsjónirnar séu ekki góðar og gildar," sagði hún í viðtalinu sem má nálgast í heild sinni hér að ofan.
Mest lesið Vaktin: Austanbylur annan í páskum Veður Bíll við bíl á Hellisheiði eftir að heyrúllur féllu á veginn Innlent Lilja mætt aftur á Alþingi Innlent Vanhæfi fyrirtækisins til að sinna skyldum sínum sé algert Innlent Vanalega óttist fólk að eitthvað hræðilegt sé að gerast Innlent Óveðrið hefur áhrif á flugáætlun Icelandair Innlent Féll fyrir borð í Norðursjó í ofsaveðri Erlent Loka Holtavörðuheiði í hádeginu og um Suðurlandið strax í fyrramálið Veður Snjóflóð hrifsaði með sér göngugarpa Innlent Viðvaranirnar appelsínugular og hviður yfir 40 metrum á sekúndu Veður Fleiri fréttir Vanhæfi fyrirtækisins til að sinna skyldum sínum sé algert Bíll við bíl á Hellisheiði eftir að heyrúllur féllu á veginn Lilja mætt aftur á Alþingi Óveðrið hefur áhrif á flugáætlun Icelandair Vanalega óttist fólk að eitthvað hræðilegt sé að gerast Lýstu eftir manni á níræðisaldri „Skynsamlegt að spyrja þjóðina“ Snjóflóð hrifsaði með sér göngugarpa Fólk stillt að mestu á Akureyri „Stórslysalaust“ á Ísafirði í nótt Hvernig greiðir Ragnar Þór atkvæði í ágúst? Gefur skít í helvítishótanir Trumps Viðreins býður fram sinn fyrsta lista á Akranesi Unnið að tillögum um lengingu brimvarnargarða Landeyjahafnar „Vatnsbólið er nánast tómt, það er að tæmast“ Hleypt inn í hollum í Vesturbæjarlaug Eldri borgarar einmana en eigi erfitt með að rífa sig upp á ný Segir stjórnvöld vinna gegn ferðaþjónustunni „Það er munur á karllíkama og kvenlíkama“ Mæla gegn því að ganga ofar en að Steini í Esjunni Óvissa í ferðaþjónustu og stuð á Aldrei fór ég suður Þrír vistaðir í fangaklefa og einn fluttur á bráðamóttöku Fyrsti innflytjandinn til að lesa Passíusálmana í kirkju skáldsins „Enginn ætti að þurfa að fara í annað land til þess að fá viðeigandi heilbrigðisþjónustu“ Lögregla lét loka þremur afhendingarstöðum áfengis „Þetta hlýtur að verða metdagur“ Snjóruðningstæki sat fast Göngin lokuð á næturnar í sjö vikur: „Hélt að þetta væri aprílgabb“ Sjúkrahúsið skilar ekki páskagjöf Smáríkisins Glórulaust að veginum hafi ekki verið lokað fyrr Sjá meira