Líkamsræktarátakið varð að nýju snjallsímaforriti 8. nóvember 2012 00:01 Kinwins Hugmyndin að snjallsímaforriti Sesselju og Valgerðar kviknaði í líkamsræktarátaki. „
Þetta byrjaði með því að við Valgerður fórum í líkamsræktarátak okkar á milli,“ segir Sesselja Vilhjálmsdóttir sem ásamt Valgerði Halldórsdóttur hefur hannað snjallsímaforritið Kinwins. Kinwins er hvatningarleikur sem gengur út á að gera notendur sína að betri mönnum og stuðla að heilbrigðu líferni. Notandinn skráir inn dagleg verkefni og safnar stigum. Hægt er svo að deila verkefnunum með vinum og fjölskyldu og hvetja hver annan áfram. „Þetta er á sama tíma samfélagsmiðill þar sem hægt er að tengjast fjölskyldu og vinum en einnig er hægt að hafa þessar upplýsingar fyrir sig og keppast um að ná betri árangri,“ segir Sesselja en rúmt ár hefur tekið að þróa leikinn sem iPhone-notendur geta núna hlaðið frítt niður í símana sína. Í framtíðinni er svo markmið Kinwins að notendur þess geti nálgast ýmsar tölfræðilegar upplýsingar um sínar hverdagslegu athafnir og séð hvað má betur fara í átt að heilbrigðara lífi og aukinni vellíðan. Sesselja og Valgerður gerðu fyrir nokkru síðan frumkvöðlaheimildarmyndina The Startup Kids og hönnuðu borðspilið Heilaspuna. Þær voru langt komnar með Facebook-leik byggðan á Heilaspuna þegar hugmyndin að Kinwins kom upp. En þarf maður ekki að búa yfir mikilli tölvufærni til að búa til smáforrit? „Við erum báðar mjög tölvuvænar og getum bjargað okkur en í þessu verkefni fengum við forritunarteymi til liðs við okkur,“ segir Sesselja en verkefnið er styrkt af Tækniþróunarsjóði. Sesselja og Valgerður stefna svo á að markaðssetja leikinn á heimsvísu á næstunni enda telja þær að leikurinn eigi erindi við alla. „Við erum tilbúnar með markaðsefni á heimsvísu og bíðum bara eftir grænu ljósi að utan. Kinwins snýst um að fá yfirsýn og kortleggja líf sitt og á sama tíma auka hæfileika sína. Það hlýtur að eiga erindi við alla.“ Hægt er að nálgast frekari upplýsingar á Kinwins.com.
Mest lesið Ákváðu að gifta sig strax þegar ljóst var að tíminn væri naumur Lífið Allir komust lifandi út – nema Beethoven Gagnrýni „Þetta var morðingi frænda míns, bara alvöru morðingi“ Lífið „Við erum öll nóg“ Lífið Skagarokk: Boða til Black Sabbath messu og tónlistarveislu næstu helgi Lífið „Ég ræð ferðinni“ Lífið „Sjálfsvinna er ævistarf“ Lífið „Ég hélt að ég væri hreinlega að deyja“ Lífið „Þessi Barbie-dúkka horfir ekki á neitt nema spegilinn“ Lífið Jökull og Telma hvort í sína áttina Lífið Fleiri fréttir Skagarokk: Boða til Black Sabbath messu og tónlistarveislu næstu helgi Ákváðu að gifta sig strax þegar ljóst var að tíminn væri naumur „Við erum öll nóg“ „Sjálfsvinna er ævistarf“ „Þetta var morðingi frænda míns, bara alvöru morðingi“ „Þetta gekk eins og í lygasögu“ „Ég hélt að ég væri hreinlega að deyja“ „Ég ræð ferðinni“ Jökull og Telma hvort í sína áttina „Þessi Barbie-dúkka horfir ekki á neitt nema spegilinn“ „Fegurð er miklu meira en bara útlit“ Stórum hluta kærunnar vísað frá Íslandsvinurinn Gucci Mane frelsissviptur Birnir á lag ársins Myndaveisla: Hundar og kettir velkomnir síðan árið 2017 „Enginn skömm að því að leita sér hjálpar“ Logi Bergmann spyr fjölmiðlamenn spjörunum úr „Ef þú ert að fara í gegnum helvíti haltu bara áfram“ Páskar: Ef þú mættir velja einhvern til að krossfesta Hvað veistu um… Óskarsverðlaunin? Bubbi, kílómetragjaldið og svikin um boltaland fyrir fullorðna Notaði allar líflínurnar í byrjun þáttarins Hlustendaverðlaunin: Kaleo er flytjandi ársins Páskabingó Blökastsins Úr Brúðkaupsþættinum Já yfir í að þjálfa leiðtoga Bubbi með opna hljómsveitaræfingu í Höllinni „Þá spurði ég hann hvort hann vildi gamla eða nýja ísinn“ Mótefni gegn afmennskun og kúgun Var sagt að þetta væri „hluti af því að vera kona“ Hundrað skvísur blómstruðu saman Sjá meira