Hvenær er maður tilbúinn? 8. nóvember 2012 00:01 Unglingar vilja leita ráða hjá foreldrum sínum um mál er tengjast kynlífi en þora því ekki. nordicphotos/getty
Í viku hverri er ég með fyrirlestur um kynlíf fyrir börn í 8. til 10. bekk grunnskóla. Fyrirlestrarnir eru gjarnan kynjaskiptir og vel sóttir. Í fræðslunni fer ég ýtarlega í allar hliðar kynfæranna og sýni þá gjarnan ljósmyndir af raunverulegum kynfærum enda mikilvægt að börn sjái fjölbreytileikann í þeim. Þá spjöllum við um margvíslega kynhegðun, kynhneigð, samskipti um kynlíf, klám og reynum að skilgreina þessa upplifun sem kynlíf er. Síðasti punkturinn er í raun í mótsögn við fræðsluna en það er ágætt að krakkarnir viti það, við erum jú öll einstaklingar með eigin upplifanir. Það á það til að gleymast á þessum árum þegar marga langar til að vera eins og „hinir". Mér þykir óendanlega vænt um þessa rúmu klukkustund sem við krakkarnir eigum saman, en þau hlusta ekki bara á mig blaðra heldur hlusta ég einnig á þau. Þá koma gullkornin sem fá mig oftar en ekki til að staldra við. Það er mín upplifun að greina megi ákveðna kynjaskiptingu í spurningunum. Strákarnir spyrja oft um „skrýtið" kynlíf, eitthvað sem þeir sáu á netinu eða heyrðu af. Það virðist vera eins og þeir nálgist kynlíf meira sem skemmtiefni og eitthvað sem megi hlæja að. Þetta rímar við rannsóknir á viðhorfum íslenskra drengja til kláms. Hvort það sé slæmt eða ekki get ég ekki sagt til um en þessir strákar segja mér að þeir geri greinarmun á kynlífi á netinu og raunveruleikanum. Þeim finnst þetta bara svo fyndið, sem er ágætt viðhorf því kynlíf má vera skemmtilegt og með dass af húmor. Stelpurnar spyrja oftast hvenær maður sé tilbúinn til að stunda kynlíf og hvernig maður viti hvort maður sé tilbúinn. Þá nefna þær dæmi um ákveðinn aldur eða fjölda bólfélaga og vilja vita hvort mér finnist þessi dæmi í lagi. Þetta eru öllu erfiðari spurningar, sérstaklega í ljósi þess að engin haldbær svör eru til. Ég segi þeim frá 15 ára aldursviðmiði hegningarlaga og reyni að gefa þeim nokkrar leiðbeinandi spurningar sem þær geta svarað fyrir sjálfar sig. Þá segi ég líka að þær eru ekki tilbúnar að sofa hjá ef þær hafa ekki stundað sjálfsfróun því fyrsta kynlífið sem maður stundar á að vera með sjálfum sér. Sjálfsfróun þýðir þó ekki að þær eigi að fara að stunda kynlíf með öðrum og við tölum líka um það. Eftir þessa umræðu spyrja þær hvernig þær geti talað við foreldrana um kynlíf áður en þær byrja að stunda það. Það finnst mér mjög mikilvægur punktur og er í raun lykilinn að vel lukkaðri kynfræðslu. Því býð ég foreldra hjartanlega velkomna í kynfræðslu til mín. Börnin ykkar vilja leita til ykkar en kunna það ekki og ég er boðin og búin til að aðstoða.
Mest lesið Gísli Marteinn syrgir þrjóskan Vesturbæing Lífið „Ætlarðu að lifa eða ætlarðu að deyja?“ Lífið Hvað veistu um… London? Lífið Hættir með stefnumótaþættina vinsælu Lífið Af TikTok á skjáinn Bíó og sjónvarp Survivor-keppandi missti fót og krefst 100 milljóna dala í skaðabætur Lífið Fylltu Egilshöllina á forsýningu Hvar er draumurinn? Bíó og sjónvarp Fastagestur lumaði á áttatíu ára gömlum grip Lífið Star Wars Zero Company: Herkænskan klikkar seint Leikjavísir Gleðibankinn fær nýjan búning í tilefni fertugsafmælis Gula miðans Lífið samstarf Fleiri fréttir Skipti máli að börn með krabbamein eigi sinn dag Gísli Marteinn syrgir þrjóskan Vesturbæing „Ætlarðu að lifa eða ætlarðu að deyja?“ Hættir með stefnumótaþættina vinsælu Fastagestur lumaði á áttatíu ára gömlum grip Hvað veistu um… London? Öskrandi nýnemar tolleraðir og busaballið handan við hornið Survivor-keppandi missti fót og krefst 100 milljóna dala í skaðabætur Gloria Steinem er látin Annað barn á leiðinni hjá Balta og Sunnevu Er hægt að kaupa hamingju fyrir íslenskar krónur? Greindu frá dánarmeini Tim Curry Eydís Elfa og Óli Gunnar eiga von á öðru barni Kampavínsdrykkja í óvissuferð leiddi til óvæntra bónorða Ný stikla varpar frekara ljósi á Harry Potter Anthony Karl og Eva selja hæð í Hlíðunum Foreldrar eigi alls ekki að vera vinir barna sinna Héldu eina glæsilegustu skírnarveislu sumarsins Þórdís segir skilið við Flekaskil Menningarmýs máluðu bæinn rauðan Candace Owens hitti fjandmann Blake Lively í Keflavík Glee-stjarna fagnaði 40 árum á Íslandi „Ef ég hefði ekki farið upp á heilsugæslu þá hefði ég ekki fengið heilablóðfall“ Myndasyrpa: Síðasti kvöldfréttatími Sýnar Hvað veistu um... fugla? Bökuðu þúsund bollakökur sem kláruðust strax Galliano slaufað og óvissa með Met Gala næsta árs Sambönd héldu þrátt fyrir harðan kosningaslag Skipstjóri selur heilsárshús á 190 milljónir Ris, fall og óútskýrð auðæfi Jeffrey Epstein Sjá meira