Innlent

Páll Óskar hagnaðist um 10 milljónir í fyrra

Páll Óskar
Páll Óskar Mynd/Baldur
Páll Óskar ehf. hagnaðist um 10 milljónir á síðasta ári samanborið við 300 þúsund krónur árið á undan. Fyrirtækið er í eigu poppkóngsins Páls Óskars Hjálmtýssonar.

Þetta kemur fram á vef Viðskiptablaðsins í dag en þar segir að félagið hafi verið stofnað árið 2008. Í viðtali við blaðið segir Páll Óskar að hagnaðurin sé vegna tónleika hans með Sinfóníuhljómsveit Íslands á síðasta ári.

„Svona tækifæri kemur bara einu sinni á ævinni þannig að þetta ár var einstaklega gott," segir Páll Óskar í samtali við blaðið.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×