Innlent

Pétur nær þriðja sæti af Brynjari

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Brynjar Níelsson er kominn niður í fjórða sæti þegar talin hafa verið 3575 atkvæði í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík. Pétur Blöndal færist upp um eitt sæti. Hanna Birna Kristjánsdóttir er ennþá í efsta sæti með um 78% atkvæða.

Mjög litlu munar á Pétri Blöndal, Brynjari Níelssyni og Guðlaugi Þór Þórðarsyni í þriðja sætið.

Uppfært klukkan 22. Röð sætanna er óbreytt þegar talin hafa verið 4564 atkvæði.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×