Innlent

Björgunarsveitamenn og þyrla kölluð á Skeiðarárjökul

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Neyðarsendir á Skeiðarárjökli fór í gang nú fyrir stundu og hefur þyrla Landhelgisgæslunnar verið kölluð út vegna þessa. Undanfarar frá Slysavarnarfélaginu Landsbjörg munu fljúga með þyrlunni.

Vitað er um erlendan ferðamann á þessum slóðum en sá hafði skráð sig hjá Tilkynningaþjónustu ferðamanna hjá Slysavarnafélaginu Landsbjörg. Sá hugðist ganga frá Jöklaseli yfir í Grímsvötn og þaðan í Skaftafell.

Þyrla LHG er að fara frá Reykjavík með björgunarsveitamenn á staðinn og er gert ráð fyrir að flugið taki um klukkustund.

Samkvæmt veðurspá er ágætt veður á jökli þessa stundina, um 8°C hiti og vindur 4 m/sek.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×