Innlent

265 manns myrtir eftir kynleiðréttingu

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Minningarathöfn verður við Reykjavíkurtjörn í dag.
Minningarathöfn verður við Reykjavíkurtjörn í dag.
Að minnsta kosti 265 einstaklingar sem hafa farið í kynleiðréttingu hafa verið myrtir í ár. Þetta segir Ugla Stefanía Jónsdóttir, ritari félagsins Trans-Ísland.

Trans-Ísland stendur fyrir kertafleytingu á Tjörninni klukkan hálf-átta í kvöld í tilefni af minningardegi transfólks, sem er haldinn ár hvert til að minnast þeirra sem hafa verið myrtir, framið sjálfmorð eða orðið fyrir einhverskonar fordómum vegna kynvitundar sinnar.

Minningardagurinn var fyrst haldinn árið 1998. „Svo náttúrlega hefur þetta orðið stærra og stærra. Það var ekki fyrr en með stofnun Transgender-Europe sem menn fóru að skoða hversu margir eru myrtir og skoða trans-fobíu út um allan heim. Það var 2008 sem fékkst styrkur til að skoða þessi mál," segir Ugla.

„Núna árið 2012 eru 265 manns sem hafa verið myrtir á árinu," segir hún. Þarna sé um að ræða varlega áætlaðar tölur því Afríka- S-Afríku og mörg Asíuríki séu ekki með í tölunum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×