Dæmd fyrir ærumeiðingar á vefsíðu Mottumars 20. nóvember 2012 17:54
Fjörtíu og fimm ára gömul kona, fagstjóri líffræðagreina í menntaskóla á höfuðborgarsvæðinu, var dæmd í 30 daga skilorðsbundið fangelsi til tveggja ára í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag fyrir ærumeiðandi aðdróttanir gagnvart karlmanni á veraldarvefnum. Konan ritaði ógeðfelld skilaboð á vefsíðu Mottumars í mars síðastliðnum, en alls ritaði konan sex færslur við mynd af manninum, sem þar birtist, þar sem hann freistaðist til þess að safna fé til stuðnings Krabbameinsfélagsins. Meðal ummæla voru eftirfarandi færslur: „Drepstu viðbjóður Fáir heita á þig enda ættir þú líklega frekar að drepa þig en reyna að safna áheitum fyrir þetta málefni. Ekki einu sinni þínir nánustu vilja styrkja þetta ófrumlega þema þitt, drekktu þig í hel, drepstu og láttu líf fyrir þau líf sem þú hefur tekið! Líklega er þér eitthvað að hefnast fyrir drápin á saklausum lífum. Bíllinn farinn og íbúðin eftir smá. Vonum að lífið sé alltaf yndislegt hjá þér enda er vont að drepast ósáttur! Drepstu viðbjóðurinn þinn og rotnaðu í því helvíti sem þú átt skilið!" Og svo: „Ljótleikinn er jafn að utan sem innan hjá þér Ljótleikinn er jafn að utan sem innan hjá þér! Hrukkur, pokar og sjúskleiki finnst örugglega líka að innan með þér :-) Enda drakk víst líka þinn innri maður og drekkur enn stíft líkt og sá sem myndin er af! Andlitið sem er eins rotnað epli líkist rotnaðri sálinni og öfugt! Þú ert ekkert annað en heppinn að hafa hitt jafn rotna manneskju og þú ert! Vitað er að þú og sambýliskonan runkið ykkur reglulega yfir óförum og vanlíðan annara!" Konan spurði einnig hvort hann væri hættur að lemja konuna sína og börn. Ekki er ljóst hvernig konan tengist manninum en hún játaði brot sín skýlaust. Konan var síðast dæmd í desember árið 2011 fyrir brot gegn barnaverndarlögum með því að hafa sent syni mannsins, sem hún er dæmd fyrir áreita núna, smáskilaboð sem voru til þess fallin að særa hann og móðga. Með þessu broti rauf hún skilorð, og var hún því dæmd í 30 daga fangelsi, eins og fyrr sagði, og er sú refsing skilorðsbundin til tveggja ára.
Mest lesið Á sextugsaldri og sótti um fimmtíu störf en fær ekki vinnu Innlent Hafi aldrei átt að taka á móti svona miklu rusli Innlent Foreldrar kaupi efnið fyrir börn sín og jafnvel vini þeirra Innlent Alls leituðu tvö hundruð manns í sex sólarhringa Innlent Sífellt meira einangraður: Heldur til í neðanjarðarbyrgjum af ótta við banatilræði Erlent „Hann heitir bara Leó páfi held ég“ Innlent Kona á sjötugsaldri lenti á sjúkrahúsi með 125 pakkningar innvortis Innlent Segir fólki á ósamþykktum peptíðum að hætta strax Innlent Stakk sofandi mann sem hann taldi hafa brotið á syni sínum Innlent Lögðu herbergið í rúst og létu sig hverfa Innlent Fleiri fréttir Hættum að vera þjóð ef við höldum ekki upp á íslenskuna Undirstöður Fossvogsbrúar reknar niður í sjávarbotninn Setja skýr skilyrði fyrir meirihlutasamstarfi í Reykjavík „Það yrðu gríðarleg vonbrigði ef svo væri“ Kona á sjötugsaldri lenti á sjúkrahúsi með 125 pakkningar innvortis Vill fjölga börnum sem eru eingöngu á brjósti til sex mánaða Burðardýr í bráðaaðgerð og hindranir í samstarfi Gögnum nemenda mögulega stolið af Canvas Mælti sér mót við barn og réðst á það Talstöðinni í Kópavogi lokað: Enginn talmeinafræðingur tilbúinn til að taka við rekstrinum Ný könnun í Kópavogi: Meirihlutinn heldur en Samfylking á siglingu Sættir sig ekki við niðurstöðu klofins Mannréttindadómstóls Hátt í hundrað heimili hugsanlega yfir tekjumörkum hjá Félagsbústöðum Herjólfur siglir frá Landeyjum og um þrjú prósent hjá Félagsbústöðum með tekjur umfram skilyrði Allt í blússandi botni í Bolungarvík þrátt fyrir lokun Kjörbúðarinnar Á sextugsaldri og sótti um fimmtíu störf en fær ekki vinnu Pallborðið: Kópavogsoddvitar mætast og glæný könnun Vonarneisti eftir erfiðan vetur Erla Björg ráðin menningarritstjóri Rúv Veðsjúkir giska á að Hildur verði næsti borgarstjóri Enn aðeins hægt að sigla til Landeyjahafnar við kjöraðstæður Tímabært að ræða einhverfu kvenna Hafi aldrei átt að taka á móti svona miklu rusli Tvær líkamsárásir og nokkrir þjófnaðir á höfuðborgarsvæðinu Lögðu herbergið í rúst og létu sig hverfa Vona að hægt verði að keyra til Eyja eftir tíu ár „Þú hefðir átt að vera með okkur í nótt“ Sekta fyrir nagladekk eftir helgi Sólmyrkvinn mögulega þúfan sem veltir hlassinu „Hann heitir bara Leó páfi held ég“ Sjá meira