Neftóbak kann að heyra sögunni til 18. janúar 2012 10:00 Hér getur að líta hefðbundið íslenskt neftóbak sem framleitt hefur verið frá 1940 við hlið nýja danska neftóbaksins Lunda sem verið hefur í sölu frá því í september í fyrra. Fréttablaðið/ANton
ÁTVR hættir innkaupum á dönsku neftóbaki meðan beðið er niðurstöðu um hvernig beri að aðgreina munn- og neftóbak. Fjöldi fólks tekur neftóbak í vörina. Mögulega þarf að heimila munntóbak eða banna neftóbak með öllu. Til greina kom að stöðva alla sölu á reyklausu tóbaki á meðan skorið yrði úr um hvernig aðgreina megi fyllilega munn- og neftóbak. „Það voru allir möguleikar skoðaðir,“ segir Sigrún Ósk Sigurðardóttir, aðstoðarforstjóri Áfengis- og tóbaksverslunar ríkisins (ÁTVR). Niðurstaða ÁTVR varð hins vegar að halda áfram sölu á íslensku neftóbaki en tilkynna Rolf Johansen & Co. (RJC) að hætt verði innkaupum á reyklausa tóbakinu Lunda. Þá verða ekki teknar í sölu nýjar tegundir á meðan úr því verði skorið hvort þessar vörur séu í raun munntóbak frekar en neftóbak. Íslenska neftóbakið var þar til í fyrrahaust eina reyklausa tóbakið á markaði hér í um 70 ár, en þá var hafin sala á Lunda sem RJC flytur inn frá Danmörku. „Margar vísbendingar eru um að reyklaust tóbak sé frekar notað í munn en nef, ólíkt því sem var á árum áður. Þetta á líka við um íslenska neftóbakið en líkur eru á að það sé í auknum mæli notað til töku í munn frekar en nef,“ segir í umfjöllun á vef ÁTVR. Samkvæmt tóbaksvarnarlögum má selja grófkorna neftóbak, en bannað að selja fínkornótt neftóbak og allt munntóbak. ÁTVR hefur óskað eftir afstöðu velferðarráðuneytisins til málsins. Bent er á að skilgreiningar varðandi nef- og munntóbak séu óljósar og nái í gildandi lögum nær eingöngu til kornastærðar en ekki til rakastigs. „Rakastig getur hins vegar skorið úr um það hvort yfirhöfuð sé hægt að taka tóbakið í nef.“ Sigrún segir íslenska neftóbakið ekki bera skarðan hlut frá borði í samkeppni við Lunda og það ráði ekki ákvörðunum ÁTVR. Hins vegar hafi orðið mikil aukning í sölu neftóbaks undanfarin ár. „Við seldum árið 2010 25,5 tonn af neftóbaki og yfir 30 tonn 2011,“ bendir hún á. Íslenska neftóbakið segir Sigrún hins vegar ekki geta notið einhverrar sérstöðu verði niðurstaða könnunarinnar sú að slík breyting hafi orðið á neysluháttum að það sé frekar notað í munn. Þá verði annaðhvort að heimila notkun munntóbaks eða banna neftóbakið alveg. Sigrún segir að enn séu til í verslunum um mánaðarbirgðir af Lunda, en búist sé við að endanleg niðurstaða fáist í skoðun á lagaumhverfi reyklauss tóbaks eftir þrjá til fimm mánuði.olikr@frettabladid.is
Mest lesið Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Innlent Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Innlent Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á hóteli í miðbænum Innlent Kynna úrræði sem eigi að liðka fyrir kjarasamningum Innlent „Hér var enginn glæpur og ekki heldur gáleysi“ Innlent Neitar að hafa myrt Charlie Kirk Erlent Munu verja hagsmuni sína á norðurslóðum „með öllum ráðum“ Erlent Minningarstundir vegna andlátanna Innlent Fleiri fréttir Flúði hótelherbergið vegna brunans og gleymdi tönnunum Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Eldri borgarar fái sanngjarnari tekjur þrátt fyrir aukin gjöld Gestir fluttir á önnur hótel vegna skemmda eftir brunann Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Lægð nálgast og hviður geta orðið bílum skeinuhættar Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða „Hér var enginn glæpur og ekki heldur gáleysi“ Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á hóteli í miðbænum Tvær líkamsárásir í miðbæ í nótt Hálft ár fyrir ræktun á þriðja hundrað kannabisplantna Kynna úrræði sem eigi að liðka fyrir kjarasamningum „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Allir níu áfram í haldi Mátti ekki gefa blóð í gær en gerði það í dag Staðan hafi ekki verið betri á þessari öld Halla verður viðstödd útför Haraldar Ætli að leggja áherslu á bókun 35 Viðreisn tapar fylgi Sigríður Þorvaldsdóttir látin Hópuppsögn á sviði heilsu- og líkamsræktar Minningarstundir vegna andlátanna Þorgerður sinnir starfi sveitarstjóra í eitt ár Andarnefja í andarslitrunum á Djúpavogi Báðar fylkingar eyddu milljónum í samfélagsmiðlaauglýsingar Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Byrjað að leggja Borgarlínu við Nauthólsveg Svekktir og reiðir stjórnendur komu saman við Ráðhúsið Komugjald lagt á: „Þetta er auðvitað ekkert annað en skattlagning“ SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Sjá meira