Guðríður vill reyna að jafna ágreininginn við Næstbesta flokkinn 18. janúar 2012 12:08
Guðríður Arnardóttir, oddviti Samfylkingarinnar í Kópavogi og formaður bæjarráðs, segir að grundvallar ágreiningur sé við Sjálfstæðisflokkinn og Framsókn um stefnumál og því liggi beinast við að jafna ágreining við Næst besta flokkinn, en hún útilokar þó ekkert. Viðræður standa nú yfir um myndun nýs meirihluta í bænum. Bæjarpólitíkin í Kópavogi er í lausu lofti í augnablikinu eftir að Hjálmar Hjálmarsson, fulltrúi Næsta besta flokksins í bæjarstjórn ákvaðað slíta meirihlutasamstarfi Samfylkingarinnar, VG, Næst besta flokksins og Lista Kópavogsbúa í gær. Málið á rætur sínar í ónægju meirihlutans með störf Guðrúnar Pálsdóttur, ópólitísks bæjarstjóra sem ráðin var eftir síðustu kosningar, en Guðríður Arnardóttir, oddviti Samfylkingarinnar og formaður bæjarráðs í Kópavogi, tilkynnti henni á föstudag að hún nyti ekki lengur trausts meirihlutans og að henn yrði sagt upp. Fulltrúi Næst besta flokksins var óánægður með hvernig staðið var að uppsögninni þótt samhugur hafi verið meðal allra kjörinna fulltrúa meirihlutans að skipta þyrfti um bæjarstjóra. Guðríður Arnardóttir sagði í samtali við fréttastofu í morgun að samstarf við Næstabesta flokkinn hefði gengið vel. Og sagðist ekki líta á ágreininginn sem kom upp fyrir helgi sem trúnaðarbrest. Guðríður segist ekki vilja útiloka að hægt sé að jafna ágreininginn við Hjálmar en segir að það verði að gerast í kjölfar viðræðna við hann. Hún segir að það sé Hjálmars að svara því í hverju ágreiningurinn liggi. „Ég lít raunar ekki á það sem svo að það sé einhver ágreiningur okkar í milli. Hann aftur á móti tjáði okkur að hann væri ósáttur við hvernig var staðið að fyrirhuguðum starfslokum bæjarstjórans. Guðríður segist ekki sjá hvernig hægt hefði verið að fara öðruvísi að. Guðríður ítrekar þó að það hafi verið samstaða um ákvörðunina um að segja bæjarstjóranum upp. Næst besti flokkurinn hafi hinsvegar verið ósáttur við aðferðafræðina í málinu. Guðríður sagði að það væri ekki ófrávíkjanleg krafa Samfylkingarinnar og VG að bæjarstjórinn yrði pólitískur. Til stóð að formleg starfslok Guðrúnar Pálsdóttur bæjarstjóra yrðu á fimmtudag. Því hefur verið frestað til að tryggja skilvirka stjórnsýslu meðan ekki er meirihluti í bæjarstjórn. Viðræður milli kjörinna fulltrúa um myndun meirihluta standa nú yfir. Tæknilega séð gæti Næst besti flokkurinn myndað meirihluta í bæjarstjórn með Framsóknarflokknum og Sjálfstæðisflokknum, sem er stærstur í Kópavogi með fjóra kjörna fulltrúa. Guðríður Arnardóttir sagði alla vera að ræða við alla í augnablikinu og ekkert meirihlutasamstarf væri útilokað. Hún sagði hins vegar að Samfylkingin og Sjálfstæðisflokkurinn og Framsókn væru ósammála um grundvallar stefnumál. „Það eru grundvallarstefnumál sem við erum ósammála um." Ármann Kr. Ólafsson, oddviti Sjálfstæðismanna í bæjarstjórn, sagði í samtali við fréttastofu að óformlegar þreifingar ættu sér stað. Hann sagðist hafa rætt við oddvita allra flokkanna. Hann sagði málið á viðkvæmu stigi.
Mest lesið Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Innlent Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Innlent „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Innlent Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á hóteli í miðbænum Innlent Kynna úrræði sem eigi að liðka fyrir kjarasamningum Innlent „Hér var enginn glæpur og ekki heldur gáleysi“ Innlent Neitar að hafa myrt Charlie Kirk Erlent Minningarstundir vegna andlátanna Innlent Fleiri fréttir Bruninn mikið áfall og tjónið líklega verulegt í versluninni Um þriðjungur þjóðarinnar horfði á síðasta fréttatímann Flúði hótelherbergið vegna brunans og gleymdi tönnunum Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Eldri borgarar fái sanngjarnari tekjur þrátt fyrir aukin gjöld Gestir fluttir á önnur hótel vegna skemmda eftir brunann Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Lægð nálgast og hviður geta orðið bílum skeinuhættar Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða „Hér var enginn glæpur og ekki heldur gáleysi“ Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á hóteli í miðbænum Tvær líkamsárásir í miðbæ í nótt Hálft ár fyrir ræktun á þriðja hundrað kannabisplantna Kynna úrræði sem eigi að liðka fyrir kjarasamningum „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Allir níu áfram í haldi Mátti ekki gefa blóð í gær en gerði það í dag Staðan hafi ekki verið betri á þessari öld Halla verður viðstödd útför Haraldar Ætli að leggja áherslu á bókun 35 Viðreisn tapar fylgi Sigríður Þorvaldsdóttir látin Hópuppsögn á sviði heilsu- og líkamsræktar Minningarstundir vegna andlátanna Þorgerður sinnir starfi sveitarstjóra í eitt ár Andarnefja í andarslitrunum á Djúpavogi Báðar fylkingar eyddu milljónum í samfélagsmiðlaauglýsingar Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Byrjað að leggja Borgarlínu við Nauthólsveg Svekktir og reiðir stjórnendur komu saman við Ráðhúsið Sjá meira