Lífið

Fáránlega fitt á sjötugsaldri

MYNDIR / COVER MEDIA
Rokkarinn Rod Stewart eyddi jólunum í Suður-Frakklandi og sýndi og sannaði að hann er ansi sprækur þó hann sé ekkert unglamb lengur. Hann lék sér í fótbolta með sjö ára syni sínum Alastair og sýndi meistaratakta.

Rod, sem er 67 ára, og Alastair byrjuðu á upphitun þar sem þeir teygðu vel á en upphitunin breyttist fljótt í farsa þegar Alastair hoppaði upp á bak föður síns. Rod tók því vel og sýndi að hann er í góðu formi með því að gera nokkkrar armbeygjur með soninn á sér.

Feðgarnir.
Alastair, sem Rod á með eiginkonu sinni Penny Lancaster, er feykigóður í fótbolta og náði að snúa á föður sinn margoft.

Hjónin
Rod er mikill aðdáandi fótbolta og er með fótboltavöll á heimili sínu í Essex.

Þú gætir unnið - vertu með okkur á Facebook.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.