Innlent

Jarðskjálfti upp á 3.8 við Gjögurtá

Jarðskjálfti af stærðinni 3.8 varð á Norðurlandi á fjórða tímanum í dag. Upptök skjálftans voru 5.6 kílómetra dýpi norðvestan af Gjögurtá.

Nokkur skjálftavirkni hefur verið á svæðinu frá því að snarpur skjálfti, 5.6 að stærð, reið yfir þann 21. október síðastliðinn.

Vakthafandi jarðskjálftafræðingur hjá Veðurstofu segir að nokkrir minni eftirskjálftar hafi komið í kjölfarið. Skjálftinn fannst vel í byggð fyrir Norðan.

Að mati Veðurstofu er ekki útilokað að fleiri skjálftar, og jafnvel stærri, fylgi í kjölfarið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×