Lífið

Blóðið flæðir í kvöld

MYNDIR / SAGAFILM
Annar þáttur af raunveruleikaþættinum MasterChef Ísland fer í loftið í kvöld á Stöð 2. Í þætti kvöldsins fara þeir bestu úr áheyrnarprufunum í svokallaðar Boot Camp, matreiðsluherbúðir.

Í Boot Camp þurfa keppendur að leysa ýmsar þrautir tengdar matreiðslu til að komast áfram í MasterChef-eldhúsið, stærsta eldhús sem sést hefur í íslenskri sjónvarpssögu.

Dularfullur kassi. Hvað skyldi leynast í honum?
Eins og sést í meðfylgjandi myndasafni gekk mikið á í Boot Camp og lentu sumir í því óhappi að skera sig á flugbeittum hnífunum. Keppendur þurftu þó ekki að hafa miklar áhyggjur því það var hjúkrunarfræðingur á staðnum til að hlúa að sárunum.

Þeir bestu komast í MasterChef-eldhúsið.
MasterChef Ísland á Facebook.

Obbosí!
Þú gætir unnið - vertu með okkur á Facebook.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.