Lífið

Logi uppseldur

Mynd/365 miðlar og Sena.
"Ég átti að árita um helgina en bókin er uppseld," svarar Logi Bergmann höfundur bókarinnar Handbók hrekkjalómsins spurður hvernig honum gengur með bókina.

"Þetta er bók um hrekki. Bæði mínar persónulegu sögur og svo er þetta líka fræðibók. Í henni er útlistun á hrekkjum, hvað gerir hrekk hrekk eins og aprílgöbb, íþróttahrekkir og hrekkir sem listgrein," svarar Logi spurður um hvað bókin fjallar.

"Nýtt upplag kemur í verslanir í fyrramálið," bætir höfundurinn við áður en hann rýkur af stað.

Logi áritar í Hagkaupum næstu helgi.

Sjá meira um bókina hans Loga hér - Sena.is.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.