Skrifar um spillingu og kröfuna um sterkan leiðtoga BBI skrifar 28. júlí 2012 13:34 Herdís Þorgeirsdóttir, lögmaður, sérfræðingur í mannréttindum og forsetaframbjóðandi.
Herdís Þorgeirsdóttir, forsetaframbjóðandi, skrifar í Morgunblaðið í dag undir yfirskriftinni „Tröllriðna land - sprungið af spillingu". Í greininni líkir hún tíðaranda dagsins við ástandið í Weimarlýðveldinu sem leiddi til uppgangs fasisma í Evrópu. „Ýmis teikn eru á lofti; atvinnuleysi er gífurlegt, gjáin milli þinga og þjóða dýpkar og kröfur verða háværari um bjargvætti í gervi sterkra leiðtoga," segir hún og telur forsetakosningarnar hér á landi hafa endurspeglað þennan tíðaranda. Turnarnir tveir hafi annars vegar staðið fyrir andstöðu við ríkisstjórn og höfðað til þeirra óöruggu, þar á hún við Ólaf Ragnar sem bar sigur úr býtum. Hinn turninn hafi staðið fyrir öfl Samfylkingar og Sjálfstæðisflokks sem vildu sporna gegn völdum forseta, þar á hún við Þóru Arnórsdóttur. Hún telur spillingu ríkjandi á Íslandi og finnst það óviðunandi. Hún lýsir því hvernig fræðimenn frá Evrópu hafi misst trúna á lýðræði og segi að það geti ekki ráðið bót á efnahagsþrengingum álfunnar. Herdís tekur ekki undir að lýðræðið sé gengið sér til húðar. Hún telur helsta vandamálið að völdin í heiminum liggi hjá fjármálaklíkum. „Eina von Evrópu í dag er ekki blóðug bylting, ekki samþjöppun valds í sterkum leiðtoga heldur almenn vitundarvakning," segir hún í enda greinarinnar.
Mest lesið Fær áfram tæpa hálfa milljón en staðgengillinn ekkert Innlent Enginn rökstuddur grunur um að önnur konan hafi brotið af sér Innlent Stíga fram á Facebook, fordæma rektor og segja nóg komið Innlent Urðu vitni að því þegar maður var hálshöggvinn Innlent Fór ekki á milli mála að Jón Þór ætlaði að drepa hana Innlent Kæra freyðivínsviðburð með Lilju Alfreðs Innlent Brast í grát fyrir dómi: „Ég er þekktur fyrir að vera sonur mömmu“ Erlent Mikil mótstaða íbúa á hitafundi um flutning kaffistofunnar Innlent Demókratar unnu orrustu í kjördæmastríðinu Erlent Konur í Framsókn sjá að sér Innlent Fleiri fréttir „Gamlar“ kempur kenndu bridge á Laugarvatni Mátti ekki kalla Samtökin '78 „hagsmunasamtök barnaníðinga“ Aldrei eins lítið í læknum og fuglunum er tekið að fækka Sorglegt að sonurinn sé aðeins tala á blaði Skjálftahrina í Mýrdalsjökli „Við sáum það að þetta hreyfði við forsætisráðherra“ Fór ekki á milli mála að Jón Þór ætlaði að drepa hana Þurfa aftur að rannsaka mál tveggja barna á Múlaborg Sorglegt að vera einungis tala á blaði Konur í Framsókn sjá að sér Stjórnin treystir Margréti Enginn rökstuddur grunur um að önnur konan hafi brotið af sér Skila af sér breyttri Reykjavíkurleið í febrúar Framsóknarmenn takast hart á að tjaldabaki Mikil mótstaða íbúa á hitafundi um flutning kaffistofunnar Saka stjórnina um „óskhyggju, afneitun og ímyndaðan veruleika“ Grautfúl Kristrún og Vetrarhátíð hefst í kvöld Tíu tilkynnt um veikindi eftir að hafa borðað mat frá Vitatorgi Afturkalla endurvigtunarleyfi Brims vegna „stórfellds gáleysis“ Fimm prósent atvinnuleysi í lok árs 2025 Samningaviðræðum slitið og áframhaldandi samstarf Í-listans úr sögunni Margir sem þurfa að horfa eða hlusta til að sofna Úr fjölmiðlum í dýraverndarmál Fær áfram tæpa hálfa milljón en staðgengillinn ekkert Stíga fram á Facebook, fordæma rektor og segja nóg komið Aðeins eitt riðutilfelli allt síðasta ár Urðu vitni að því þegar maður var hálshöggvinn Páll Edwald vill sæti á lista Miðflokksins Kæra freyðivínsviðburð með Lilju Alfreðs „Seðlabankastjóri gat ekki sagt það skýrar“ Sjá meira