Þjóðin fái að kjósa um stjórnarskrána 14. febrúar 2012 08:00 Formaður stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar vill að þjóðin fái að greiða atkvæði um drög stjórnlagaráðs að nýrri stjórnarskrá. Nefndin fundar í dag. fréttablaðið/gva
Formaður stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar vill að drög að nýrri stjórnarskrá verði borin undir þjóðina í sumar. Málið verður að klárast í mars eigi að kjósa samhliða forsetakosningum. Ekki í samræmi við yfirlýsingar varaformanna. Valgerður Bjarnadóttir, formaður stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar Alþingis, leggur til á fundi nefndarinnar í dag að drög að nýrri stjórnarskrá verði borin í heilu lagi undir þjóðina samhliða forsetakosningum í sumar. Aukreitis verði nokkrar spurningar um ákveðna efnisþætti. „Ég mun leggja það til að frumvarpið verði í heild sinni lagt fyrir þjóðina og svo nokkrar spurningar með. Þetta er það sem ég mun leggja fram á morgun [í dag]. Ég vonast til að við náum að klára málið fyrir lok mars.“ Mikilvægt er að það náist þar sem boða verður til þjóðaratkvæðagreiðslu með að minnsta kosti þriggja mánaða fyrirvara. Dragist málið næst því ekki að kjósa samhliða forsetakosningum í júní. Álfheiður Ingadóttir, fyrsti varaformaður nefndarinnar, og Róbert Marshall, annar varaformaður, sögðu í Fréttablaðinu á föstudag að unnið væri eftir þeim línum að fá viðhorf þjóðarinnar til mikilvægustu greina stjórnarskrárinnar. „Eftir því sem vinnunni hefur undið fram í nefndinni hefur mér sýnst að það borgi sig að leggja fram nokkrar spurningar út úr skjalinu þar sem þjóðin er beðin að taka afstöðu til forsetaembættisins, ríkis og kirkju, auðlindaákvæðis og svo framvegis,“ sagði Róbert þá. Gísli Tryggvason, sem sat í stjórnlagaráði, segist treysta því að stjórnarskrárfrumvarpið verði borið undir þjóðina í heild sinni. Það sé yfirlýstur vilji forsætisráðherra og meirihluta allsherjarnefndar Alþingis. Gísli segir þjóðina vera mikilvægasta aðilann að málinu og því mikilvægt að hún fái að segja skoðun sína. Gísli segir marga kosti í stöðunni og kannski sé fullmikið að þjóðin greiði atkvæði um hverja einustu grein frumvarpsins. Mögulegt væri að greiða atkvæði um hvern kafla. „Hvor leiðin fyrir sig er vel framkvæmanleg því þetta er bara ráðgefandi atkvæðagreiðsla,“ segir Gísli. Auðvelt sé því að vinna úr niðurstöðum hennar. „Önnur leið væri að í stað þess að greiða atkvæði um einstaka grein eða kafla þá séu greidd atkvæði um þau atriði sem Alþingi og stjórnlagaráð eru ósammála um.“ Til að svo megi verði segir Gísli mikilvægt að stjórnlagaráð komi aftur að málinu og vinni með Alþingi að undirbúningi atkvæðagreiðslunnar, eins og boðið var upp á í skilabréfi ráðsins. kolbeinn@frettabladid.is
Mest lesið Minningarstundir vegna andlátanna Innlent Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Innlent Ætli að leggja áherslu á bókun 35 Innlent Hópuppsögn á sviði heilsu- og líkamsræktar Innlent Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Innlent Öll hin látnu um og undir tvítugu Innlent Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Innlent „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Innlent Fleiri fréttir „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Allir níu áfram í haldi Mátti ekki gefa blóð í gær en gerði það í dag Staðan hafi ekki verið betri á þessari öld Halla verður viðstödd útför Haraldar Ætli að leggja áherslu á bókun 35 Viðreisn tapar fylgi Sigríður Þorvaldsdóttir látin Hópuppsögn á sviði heilsu- og líkamsræktar Minningarstundir vegna andlátanna Þorgerður sinnir starfi sveitarstjóra í eitt ár Andarnefja í andarslitrunum á Djúpavogi Báðar fylkingar eyddu milljónum í samfélagsmiðlaauglýsingar Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Byrjað að leggja Borgarlínu við Nauthólsveg Svekktir og reiðir stjórnendur komu saman við Ráðhúsið Komugjald lagt á: „Þetta er auðvitað ekkert annað en skattlagning“ SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Norðausturland fær loks langþráðan veg Tjón vegna skemmdarverka hlaupi á milljónum Rætt við vitni að banaslysinu og eldri borgarar ósáttir með skattahækkun Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Rún frá Veitum til Þorgerðar Katrínar Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Hlaup af þessari stærðargráðu vel þekkt í Múlakvísl Kviknaði í jeppa á Reykjanesbraut Leggja til að Evrópusambandsumsóknin verði formlega dregin til baka Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Sakborningur í Kársnesmáli sóttur til Spánar Sinntu hávaðatilkynningum í heimahúsum Sjá meira