Sakar ríkissaksóknara um að hvítþvo lögreglu 14. febrúar 2012 19:34
Hæstaréttarlögmaður sakar ríkissaksóknara um að hvítþvo lögreglu ítrekað og fella niður mál um meint brot hennar í starfi. Öfugt við ríkissaksóknara, komst Héraðsdómur að þeirri niðurstöðu í dag að lögregla hefði brotið lög þegar hún hleypti myndatökumanni Kastljóss inn á einkaheimili við húsleit. Húsráðendum voru dæmdar skaðabætur. Myndatökumaður Kastljóss fór í fylgd lögreglu í húsleit í úthverfi Kópavogs í mars 2009 vegna gruns um fíkniefnabrot húsráðenda. Lögreglu er ekki heimilt, samkvæmt eigin verklagsreglum, að hleypa fjölmiðlum inn á einkaheimili til myndatöku - nema með samþykki húsráðenda. Það var ekki veitt enda húsráðendur á ferðalagi á leið til Íslands þegar húsleitin fór fram. Myndefnið var aldrei birt en Héraðsdómur Reykjavíkur komst að þeirri niðurstöðu í dag að starfsmenn lögreglu hefðu með þessu brotið eigin reglur - og brotið þagnarskylduákvæði lögreglulaga. Lögmaður fólksins fagnar dómnum - en er ósáttur við ríkissaksóknara. „Það sem er athyglisvert við þetta er að ríkissaksóknari hafði haft sakamálahluta þessa sama máls til meðferðar en ríkissaksóknari ákvað venju samkvæmt að hvítþvo lögregluna í þessu sambandi og hætti rannsókn málsins," sagði Vilhjálmur H. Vilhjálmsson, hæstaréttarlögmaður. Vilhjálmur vísar þarna til þess að ríkissaksóknari felldi niður rannsókn á sama máli. „Á grundvelli þess að lögreglan hafi verið í lögvillu og hins vegar að lögreglan hafi ekki brotið gegn þagnarskyldu ákvæðum." Vilhjálmur telur að ríkissaksóknari sé vanhæfur til að fjalla um meint brot lögreglu í starfi - ekki sé einleikið hversu oft slík mál falli niður í höndum hans. „Ég skora á löggjafann að taka á þessu vandamáli." Ríkissaksóknari vildi ekki tjá sig um málið að svo stöddu, þegar eftir því var leitað.
Mest lesið Minningarstundir vegna andlátanna Innlent Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Innlent Ætli að leggja áherslu á bókun 35 Innlent Hópuppsögn á sviði heilsu- og líkamsræktar Innlent Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Innlent Öll hin látnu um og undir tvítugu Innlent Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Innlent „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Innlent Fleiri fréttir „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Allir níu áfram í haldi Mátti ekki gefa blóð í gær en gerði það í dag Staðan hafi ekki verið betri á þessari öld Halla verður viðstödd útför Haraldar Ætli að leggja áherslu á bókun 35 Viðreisn tapar fylgi Sigríður Þorvaldsdóttir látin Hópuppsögn á sviði heilsu- og líkamsræktar Minningarstundir vegna andlátanna Þorgerður sinnir starfi sveitarstjóra í eitt ár Andarnefja í andarslitrunum á Djúpavogi Báðar fylkingar eyddu milljónum í samfélagsmiðlaauglýsingar Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Byrjað að leggja Borgarlínu við Nauthólsveg Svekktir og reiðir stjórnendur komu saman við Ráðhúsið Komugjald lagt á: „Þetta er auðvitað ekkert annað en skattlagning“ SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Norðausturland fær loks langþráðan veg Tjón vegna skemmdarverka hlaupi á milljónum Rætt við vitni að banaslysinu og eldri borgarar ósáttir með skattahækkun Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Rún frá Veitum til Þorgerðar Katrínar Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Hlaup af þessari stærðargráðu vel þekkt í Múlakvísl Kviknaði í jeppa á Reykjanesbraut Leggja til að Evrópusambandsumsóknin verði formlega dregin til baka Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Sakborningur í Kársnesmáli sóttur til Spánar Sinntu hávaðatilkynningum í heimahúsum Sjá meira