Innlent

Ögmundur: Þarf að fara varlega þegar auðmenn sveifla peningabúntum

Ögmundur Jónasson.
Ögmundur Jónasson.
„Við þurfum að fara varlega þegar auðmenn eru að veifa framan í okkur þykkum seðlabúntum," segir Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra, spurður út í eignarhald erlendra aðila og fjárfesta á íslensku landi í útvarpsþættinum Reykjavík Síðdegis á Bylgjunni í dag. Sveitarfélagið Norðurþing íhugar að kaupa jörðina Grímsstaði á Fjöllum með láni frá Huang Nubo og leigja honum hana síðan. Sveitarfélagið myndi þá eiga jörðina á móti ríkinu sem á fjórðungshlut.

Eins og kunnugt er synjaði Ögmundur kaupunum staðfestingar, en borgarar ríkja utan EES þurfa slíkt samþykki á grundvelli laga um eignarrétt og afnotarétt fasteigna.

Ögmundur segist ekki hafa fengið málið inn á sitt borð og geti því ekki rætt það efnislega en undirstrikar nauðsyn þess að ræða slík mál í samfélaginu og þá ekki síst í ljósi þess að Guðfríður Lilja Grétarsdóttir, þingmaður VG, hyggst leggja fram frumvarp um eignarhald erlendra aðila á Íslandi á næstu mánuðum.

Ögmundur segir í mörg horn að líta. Til að mynda megi sveitarfélög ekki skuldsetja sig umfram 150 prósentum af árstekjum sveitarfélagsins samkvæmt nýsamþykktum sveitarstjórnarlögum. Það geti komið í veg fyrir að sveitarfélagið taki lán til þess að kaupa landið.

Hægt er að hlusta á viðtalið við Ögmund í Reykjavík síðdegis með því smella á þennan hlekk. Þar ræðir hann einnig vörslusviptingar en hann segir það grundvallarreglu að þar sé farið að lögum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×