Ögmundur: Þarf að fara varlega þegar auðmenn sveifla peningabúntum 21. febrúar 2012 20:00 Ögmundur Jónasson. „
Við þurfum að fara varlega þegar auðmenn eru að veifa framan í okkur þykkum seðlabúntum," segir Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra, spurður út í eignarhald erlendra aðila og fjárfesta á íslensku landi í útvarpsþættinum Reykjavík Síðdegis á Bylgjunni í dag. Sveitarfélagið Norðurþing íhugar að kaupa jörðina Grímsstaði á Fjöllum með láni frá Huang Nubo og leigja honum hana síðan. Sveitarfélagið myndi þá eiga jörðina á móti ríkinu sem á fjórðungshlut. Eins og kunnugt er synjaði Ögmundur kaupunum staðfestingar, en borgarar ríkja utan EES þurfa slíkt samþykki á grundvelli laga um eignarrétt og afnotarétt fasteigna. Ögmundur segist ekki hafa fengið málið inn á sitt borð og geti því ekki rætt það efnislega en undirstrikar nauðsyn þess að ræða slík mál í samfélaginu og þá ekki síst í ljósi þess að Guðfríður Lilja Grétarsdóttir, þingmaður VG, hyggst leggja fram frumvarp um eignarhald erlendra aðila á Íslandi á næstu mánuðum. Ögmundur segir í mörg horn að líta. Til að mynda megi sveitarfélög ekki skuldsetja sig umfram 150 prósentum af árstekjum sveitarfélagsins samkvæmt nýsamþykktum sveitarstjórnarlögum. Það geti komið í veg fyrir að sveitarfélagið taki lán til þess að kaupa landið. Hægt er að hlusta á viðtalið við Ögmund í Reykjavík síðdegis með því smella á þennan hlekk. Þar ræðir hann einnig vörslusviptingar en hann segir það grundvallarreglu að þar sé farið að lögum.
Mest lesið Trump segist vera að íhuga að draga saman seglin í Þýskalandi Erlent Einhuga um að lengja gildistíma ökuskírteina Innlent Rifjaði upp erfitt augnablik frá 1994 til að skjóta á mótherja Innlent Stefni í sömu átt og Svíþjóð Innlent Baldur til Eyja Innlent Mamdani vill að Bretar skili Koh-i-Noor Erlent Bútaði líkið í sundur í uppblásinni sundlaug Erlent Seltjarnarnes heldur áfram að tapa Innlent „Þetta er gríðarlegt högg fyrir þessi minni bæjarfélög“ Innlent Gripu til sinna ráða og settu Starlink í skólarútuna Innlent Fleiri fréttir Helmingur gæti ekki mætt 100 þúsund króna útgjöldum Bein útsending: Svarar fyrir skipulagsbreytingar á framhaldsskólum Bein útsending: Ræða markmiðadrifði hagkerfi í þaula Rifjaði upp erfitt augnablik frá 1994 til að skjóta á mótherja Einhuga um að lengja gildistíma ökuskírteina Baldur til Eyja „Þetta er gríðarlegt högg fyrir þessi minni bæjarfélög“ „Það er mikið verið að suða“ Stefni í sömu átt og Svíþjóð Gripu til sinna ráða og settu Starlink í skólarútuna „Hún er skrifuð af mér“ Ísland stefni í sömu átt og Svíþjóð Fjórir í varðhaldi vegna Dettifossmálsins Rafgeymar gátu ekki fætt dælur þegar Ormurinn langi sökk Mega hjóla gegn einstefnu Greiða hundruð þúsunda fyrir heimsókn Tinna til Íslands Bein útsending: Oddvitar í Reykjavík á kosningafundi Viðskiptaráðs Viðreisn upp fyrir Sjálfstæðisflokk og Framsókn bætir við sig Leiðir áfram unga miðflokksmenn Batahorfur betri eftir umferðarslys við Skógarveg „Það var reynt að fá þá fyrr að verkinu“ Algengt að krafa sé gerð í sambandi um að deila stöðugt staðsetningu Verðbólgan hjaðnar og vandræði í Landeyjahöfn Halda til Svíþjóðar í afmælisveislu Atli og Sunna nýir fréttastjórar og Árni varafréttastjóri Kosningapallborð fréttastofu: Glæný skoðanakönnun kynnt fyrir Hafnarfjörð Sænska lögreglan reynir að uppræta „glæpamenn til leigu“ Systkinaforgangur og heimgreiðslur á lista margra framboða í Reykjavík „Mögulegt heimilisofbeldi“ reyndist tölvuleikur Kölluð út á efsta forgangi vegna báts í vanda á Kópaskeri Sjá meira