Innlent

Ómar fékk fyrstu teygjuna

Ómar Ragnarsson fékk afhenta fyrstu Athafnateygjuna þetta árið.
Ómar Ragnarsson fékk afhenta fyrstu Athafnateygjuna þetta árið. Fréttablaðið/GVA
Hin árlega athafnavika, hátíð athafnasemi og framkvæmdagleði, hófst formlega með hringingu Kauphallarbjöllunnar í gærmorgun. Athafnavikan er haldin hátíðleg í 120 löndum í öllum heimsálfum.

Einkenni vikunnar er svokölluð Athafnateygja, númerað gúmmíarmband sem þátttakendur eiga að vera með á meðan þeir framkvæma eitthvað verkefni. Ómar Ragnarsson fékk fyrstu Athafnateygjuna þetta árið

„Þetta er mjög gott framtak,“ sagði Ómar. „Við erum það lítil þjóð að framkvæmd einnar góðrar hugmyndar getur haft veruleg áhrif á þjóðarbúið. Þannig skapar til dæmis CCP fleiri störf en heilt álver.“ Það er Innovit, nýsköpunar- og frumkvöðlasetur, sem stendur fyrir Alþjóðlegu athafnavikunni hér á landi.- mþl




Fleiri fréttir

Sjá meira


×