Ólafur Ragnar bauð Alberti borgarstjórastólinn 16. nóvember 2012 07:00 Styrmir Gunnarsson lyfti hulunni af ýmsu í sögu Sjálfstæðisflokksins í nýrri bók.
Fyrir sveitarstjórnarkosningarnar 1982 bauð Ólafur Ragnar Grímsson, þáverandi þingflokksformaður Alþýðubandalagsins, Alberti Guðmundssyni, borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins, embætti borgarstjóra að loknum kosningum gegn því að Albert færi fram með sérlista. Þetta kemur fram í nýrri bók Styrmis Gunnarssonar, Sjálfstæðisflokkurinn – Átök og uppgjör. Styrmir segir að Ólafur Ragnar hafi jafnframt gefið Alberti til kynna að hann ætti kost á borgarstjóraembættinu þó að hann færi á lista Sjálfstæðismanna ef hann svo klyfi sig frá sjálfstæðismönnum að kosningum loknum. Að því er Styrmir hermir staðfesti Svavar Gestsson, þáverandi formaður Alþýðubandalagsins, við Sjálfstæðismenn á þeim tíma að Ólafur Ragnar væri að „rækta“ Albert og hefði haft heimild til þess að bjóða honum borgarstjóraembættið ef hann færi fram með sérframboð. Ef Ólafur hefði hins vegar boðið honum borgarstjóraembætti þótt hann færi fram á lista Sjálfstæðismanna, hefði það verið á ábyrgð Ólafs sjálfs. Ekkert varð þó af þessu. Sjálfstæðisflokkurinn fékk meirihluta í kosningunum, Davíð Oddsson varð borgarstjóri og Albert forseti borgarstjórnar. Að mati Styrmis sýndu þessar þreifingar fram á hvers konar áhrif stjórnarmyndun Gunnars Thoroddsen 1980 hafði á stjórnmálin, en Gunnar, ásamt nokkrum þingmönnum Sjálfstæðisflokks, gekk til liðs við Alþýðubandalagið og Framsóknarflokkinn. Þetta hafi orðið til þess að hvetja andstæðinga flokksins „til þess að láta reyna á frekari klofning innan flokksins með því að veifa metorðum framan í menn“, segir Styrmir.- þj
Mest lesið Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Innlent Banaslys í Skorradalsvatni Innlent Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Innlent Ofurölvi reyndi að opna bíla í akstri Innlent Safna í sérstakt sjóherlið á Norðurslóðum Erlent Langhæsti styrkurinn fer til Eyja Innlent Vasaþjófnaður aukist að undanförnu Innlent „Bjóða fram“ Biðlistann í Reykjavík Innlent Segist ekkert hafa fengið greitt: „Pólitískur hráskinnaleikur“ Innlent Andar köldu milli Viðreisnar- og Miðflokksmanna Innlent Fleiri fréttir Gagnrýnir vinnubrögð bæjarstjórnar Kópavogs harðlega Framboðum Miðflokksins fjölgar um átta milli kosninga Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Bein útsending: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Langhæsti styrkurinn fer til Eyja Vasaþjófnaður aukist að undanförnu „Bjóða fram“ Biðlistann í Reykjavík Ofurölvi reyndi að opna bíla í akstri „Við erum með lengri óskalista heldur en þetta“ Segist ekkert hafa fengið greitt: „Pólitískur hráskinnaleikur“ „Þetta er bara eins og að missa vini sína“ Andar köldu milli Viðreisnar- og Miðflokksmanna Föst í umferð í tæpa fjóra sólarhringa á ári og kostnaðurinn yfir hundrað milljarðar Banaslys í Skorradalsvatni Glæný könnun gæti varpað ljósi á meirihlutamyndun Hlaðvarpsstjórnendur fá nýjar leiðbeiningar Urðu eftir í Flatey á meðan Baldur sigldi suður Halla fagnaði áttræðum Karli Gústafi Sömdu um stækkun á Fylkisseli Kannast ekki við meint rán í Lágafellskirkju Ákærður fyrir að eitra fyrir samstarfsfélaga með kannabis Tjáir sig ekki um greiðslur frá Rúv en boðar yfirlýsingu Skipulagt niðurbrot á réttindum launafólks hafi náð til Íslands „Konur upplifa ekki öryggi í íslensku samfélagi“ Nafn mannsins sem lést í fallhlífastökki í Danmörku Mátti ekki arfleiða sambýliskonuna að séreigninni Dómsmálaráðherra boðar herta löggjöf í vændismálum Vændiskaupendur verði nafngreindir og þeim stungið í steininn Svör Kristrúnar minni meira á Keir Starmer en Mette Fredriksen Sjá meira