Lífið

Ofurkroppur og hundavinur

MYNDIR / COVER MEDIA
Ofurfyrirsætan Irina Shayk var eldhress er hún heimsótti ASPCA-ættleiðingarmiðstöðina í New York um helgina.

ASPCA bjargar dýrum sem þurfa að þola hrikalega meðferð og reynir að koma þeim á betri heimili.

Kjút með kjölturakka.
Irina er greinilega mikill hundavinur því hún vílaði ekki fyrir sér að sitja fyrir með krúttlegum hvolpi. Hún knúsaði og kyssti hann í bak og fyrir og virtist skemmta sér vel.

Glæsileg fyrirsæta.
Með kærastanum, knattspyrnukappanum Cristiano Ronaldo.
Þú gætir unnið - vertu með okkur á Facebook.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.