Ástandið verra en mig grunaði 19. desember 2012 13:30 Heiðar Austmann. Mynd/365 miðlar "
Ég er í nettu sjokki eftir að hafa lesið þessa tölvupósta en ég fer yfir þá alla sjálfur persónulega og í gegnum þá sé ég sársaukann og raunirnar sem fólk hefur eða er að ganga í gegnum. Ástandið verra en mig grunaði," segir Heiðar Austmann útvarpsmaður og dagskrárstjóri FM957 en líkt og síðustu ár hefur útvarpsstöðin FM957 ákveðið að aðstoða fólk sem þarf á aðstoð að halda fyrir jólin. "Morð, veikindi, framhjáhald, skilnaður og ofbeldi er meðal þess sem kemur fyrir í þessum tölvupóstum en það þarf hugrekki til að setja sína sögu niður á blað og deila með manni sem það þekkir ekki neitt," segir Heiðar. "Það má með sanni segja að það komi manni algjörlega niður á jörðina við að lesa þessa tölvupósta og þessar sögur frá fólki. Lífið er ekki eins klippt og skorið og maður hélt. Maður vissi alveg að fólk væri að glíma við ýmislegt en eftir þessa pósta þá sér maður hlutina í öðru samhengi og þakkar í raun guði fyrir að maður sé með vinnu, sé heilbrigður sjálfur og á heilbrigt barn og fjölskyldu. Í gegnum póstana sér maður samt alltaf vonarneistann hjá fólki og ekkert þeirra er tilbúið til að gefast upp heldur halda þau áfram að berjast í gegnum storminn. Það er hinsvegar ekkert að því og engin skömm í að biðja um aðstoð." "FM957 fékk til liðs við sig nokkur fyrirtæki til að leggja hönd á plóg og aðstoða. Niðurstaðan varð samt framar vonum því að þessi fyrirtæki vildu ekki bara aðstoða eina fjölskyldu heldur vildu þau aðstoða fjóra einstaklinga eða fjölskyldur fyrir þessi jól. Next í Kringlunni sér um fötin, Netto sér um jólamatinn og svo sjá Garðheimar um jólatréð og jólaskrautið til að gera heimilið fallegt og jólalegt fyrir jólin. Stöð 2 hefur síðan bæst við og gefum fjölskyldunum "Jólapakka Stöðvar 2" sem er áskrift og meira með því." "Við höfum verið með auglýsingar í gangi núna undanfarið þar sem við hvetjum fólk til að senda okkur sína sögu á fmhjalpar@fm.is og hafa viðbrögðin verið í einu orði sagt mögnuð. Einnig hafa vinir og ættingjar verið duglegir við að benda á fólk sem það telur að þurfi á hjálp að halda því að oft getur stoltið staðið í vegi fyrir að fólk biðji um aðstoð og því er gott að eiga góða að. Mig langar að þakka öllum þeim sem hafa nú þegar sent mér tölvupóst og einnig langar mig að þakka þeim fyrirtækjum sem eru að aðstoða mig og FM957 í þessu verkefni," segir Heiðar að lokum.
Mest lesið Héldu eina glæsilegustu skírnarveislu sumarsins Lífið Foreldrar eigi alls ekki að vera vinir barna sinna Lífið Anthony Karl og Eva selja hæð í Hlíðunum Lífið Kampavínsdrykkja í óvissuferð leiddi til óvæntra bónorða Lífið Greindu frá dánarmeini Tim Curry Lífið Eydís Elfa og Óli Gunnar eiga von á öðru barni Lífið „Ef ég hefði ekki farið upp á heilsugæslu þá hefði ég ekki fengið heilablóðfall“ Lífið Beint flug til Portó Lífið samstarf Tilgangslaust að rakka niður klæðaburð fólks Tíska og hönnun HAM boða endalok alls Tónlist Fleiri fréttir Greindu frá dánarmeini Tim Curry Eydís Elfa og Óli Gunnar eiga von á öðru barni Kampavínsdrykkja í óvissuferð leiddi til óvæntra bónorða Ný stikla varpar frekara ljósi á Harry Potter Anthony Karl og Eva selja hæð í Hlíðunum Foreldrar eigi alls ekki að vera vinir barna sinna Héldu eina glæsilegustu skírnarveislu sumarsins Þórdís segir skilið við Flekaskil Menningarmýs máluðu bæinn rauðan Candace Owens hitti fjandmann Blake Lively í Keflavík Glee-stjarna fagnaði 40 árum á Íslandi „Ef ég hefði ekki farið upp á heilsugæslu þá hefði ég ekki fengið heilablóðfall“ Myndasyrpa: Síðasti kvöldfréttatími Sýnar Hvað veistu um... fugla? Bökuðu þúsund bollakökur sem kláruðust strax Galliano slaufað og óvissa með Met Gala næsta árs Sambönd héldu þrátt fyrir harðan kosningaslag Skipstjóri selur heilsárshús á 190 milljónir Ris, fall og óútskýrð auðæfi Jeffrey Epstein Sonurinn fékk nafnið Skógur Stjörnulífið: Sjö ár af stanslausri ást Stjörnum prýddur gestalisti og Billie Eilish í glænýju hlutverki Áslaug Arna mætti með nýja kærastann Margrét og Ísak Ernir gengu í það heilaga „Hræðilegt að sjá ofbeldið sem ég beitti mig“ Krakkatía vikunnar: Skyr, knörr og rauðbrystingur Myndaveisla úr gleðinni hjá já-fólkinu Myndaveisla af stuðinu hjá Áfram Ísland Kjósendur á lokasprettinum: „Ég bara gleymdi þessu“ Dorrit missti aðgang á forrit Sjá meira