Lífið

Nammi namm! Súpermódel á Subway

MYNDIR / COVER MEDIA
Súpermódel eru þekkt fyrir að beita sig ströngum mataraga en danska fyrirsætan Helena Christensen gefur lítið fyrir fábrotið mataræði.

Hún skellti sér á Subway í New York í vikunni og keypti sér stóran bát. Hún var algjörlega ómáluð og var skítsama þó paparassarnir eltu hana á röndum.

Ein á ferð.
Helena er orðin 43ja ára og eldist alveg fáránlega vel. Hún var geysivinsæl fyrirsæta á sínum tíma og módelaðist fyrir Victoria's Secret, Revlon og Chanel svo nokkur dæmi séu tekin. Dásamleg!

Á tískupöllunum í den.
Þú gætir unnið - vertu með okkur á Facebook.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.