Innlent

Ögmundur leiðir lista VG í Kraganum

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Ögmundur Jónasson verður efsti maður á lista VG í Kraganum.
Ögmundur Jónasson verður efsti maður á lista VG í Kraganum.
Ögmundur Jónasson er fyrsti maður á lista VG í Suðvesturkjördæmi. Hann fékk 261 atkvæði, eða um 55%, í fyrsta sætið af 480 gildum atkvæðum í prófkjörinu sem fór fram í dag. Ólafur Þór Gunnarsson varð í öðru sæti með 234 atkvæði í það sæti. Rósa Björk Brynjólfsdóttir varð í þriðja sæti með 249 atkvæði í það sæti og Margrét Pétursdóttir varð í fjórða sæti með 295 atkvæði.

Vegna reglna um fléttulista mun Rósa Björk væntanlega færast upp í annað sætið þegar kjörstjórn og kjördæmaráð hefur farið yfir stöðuna, samkvæmt upplýsingum frá Tómasi Jónssyni formanni kjörstjórnar.

Hér má sjá niðurstöður prófkjörsins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×