Eldvarnir yfir jól og áramót 26. nóvember 2012 17:00 Fyrst og fremst eru það opinn eldur og kertaskreytingar sem valda eldhættu, en ekki má gleyma að við notkun alls kyns rafmagnsljósasería eykst eldhætta líka. MYND/GVA
Bjarni Kjartansson, sviðsstjóri forvarnarsviðs Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins, ráðleggur fólki að huga vel að eldvörnum. Eldvarnir ættu að vera ofarlega í hugum landsmanna nú á aðventunni, enda fylgja henni margs konar kertaskreytingar og ljósaseríur. "Það verður svolítil aukning á brunum í desember en mesta aukningin er í janúar þó svo að áhætturnar virðist meiri í desember. Það er erfitt að segja af hverju. Kannski slakar fólk á eldvörnunum eftir að jólunum lýkur eða er sérstaklega meðvitað um þær í kringum jólin," segir Bjarni Kjartansson hjá Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins.Hvar leynast hætturnar? "Fyrst og fremst eru það opinn eldur og kertaskreytingar sem valda hættu en einnig alls kyns rafmagnsljósaseríur. Ljósaperur í seríum geta hitnað mikið, og ef þær liggja lengi utan í einhverju getur hitinn vel valdið íkveikju. Ég myndi segja að þessi köldu ljós eins og díóðuljós séu hættuminni, enda engar heitar perur til staðar." Of mikið álag á rafmagnssnúrum getur hæglega skapað eldhættu. "Passa þarf að ekki séu of mörg ljós eða seríur á grannri framlengingarsnúru. Mörg ljós eða seríur á einni grannri framlengingarsnúru gerir það að verkum að hún hitnar og við það skapast eldhætta."Varasamar kertaskreytingar Vinsælt hefur verið að líma myndir á kerti og varar Bjarni fólk við því. "Þegar myndir eru límdar utan á kerti vill það gerast að kertið brennur niður en svo stendur örþunn filma af vaxi ásamt myndinni eftir upp úr. En hæglega getur kviknað í kertavaxinu ef það nær að hitna nóg. Góð regla er að halda kertaskreytingum sem lengst frá kertunum. Þannig minnkar eldhættan. Einnig mæli ég með að úða eldtefjandi efni á allar kertaskreytingar." Jólagjöf unga fólksins Eldvarnarbandalagið lét gera könnun á eldvarnartækjaeign fyrir nokkru. "Þar kom í ljós að ungt fólk er verst sett í þeim efnum. Ég mæli því með því að foreldrar sem eiga börn sem nýlega eru byrjuð að búa gefi þeim hina svokölluðu heilögu þrenningu í jólagjöf; slökkvitæki, reykskynjara og eldvarnarteppi."Tölum saman Nú sem ávallt á það við að ræða við börnin sín um eldvarnir. "Nú eru fimm ára börn búin að fá Loga og Glóð í heimsókn á leikskólann og átta ára börnin hafa fengið forvarnarfulltrúa í heimsókn. Nauðsynlegt er að fara yfir öryggisatriði með börnunum og kenna þeim hvernig á að umgangast eld á heimilinu. Betra er að kenna þeim hætturnar sem fylgja eldi og að umgangast hann rétt heldur en að vera með boð og bönn og skammir."
Mest lesið Lést við tökur á Emily in Paris Erlent Níu sviptir leyfi meðan á annað hundrað kvartana hafa borist Innlent Alvarlegt slys á starfsmönnum á Íslandsmeistarmóti í rallycross Innlent Ferðamaður neitaði að borga reikninginn og lét öllum illum látum Innlent Stungumanni í Bankastrætismálinu aftur stungið í steininn Innlent Eigandi Sante segir málið gjörunnið: „Frelsið sigrar alltaf að lokum” Innlent „Forsetinn var aldrei óviðeigandi við neinn“ Erlent Farþegar látnir sofa á gólfinu á hóteli í Keflavík Innlent Leiðist „linnulaust væl” Íslendinga yfir réttu málfari Innlent „Beint frá býli dagurinn“ býður landsmönnum í heimsókn Innlent Fleiri fréttir Alvarlegt slys á starfsmönnum á Íslandsmeistarmóti í rallycross Gríðarlegt magn myndefnis til skoðunar hjá lögreglu Leiðist „linnulaust væl” Íslendinga yfir réttu málfari Eigandi Sante segir málið gjörunnið: „Frelsið sigrar alltaf að lokum” 99 ára gömul tombóla á Borg í Grímsnesi og engin núll Vínsali býst við ákæru, kúnnalisti Epstein og stemming í bænum Reiðhjólabændur með vaktað hjólastæði í Traðarkoti til miðnættis Níu sviptir leyfi meðan á annað hundrað kvartana hafa borist „Beint frá býli dagurinn“ býður landsmönnum í heimsókn Útihátíð fyrir ungmenni gekk eins og í sögu Ferðamaður neitaði að borga reikninginn og lét öllum illum látum Stungumanni í Bankastrætismálinu aftur stungið í steininn Sjö ára hlaupari kemur hópnum yfir línuna í sjötta maraþoninu á morgun Skoða að flýta aðgerðum í húsnæðismálum til að ná tökum á verðbólgunni „Versti tíminn, allra versti tíminn“ Gamall þristur strand vegna skorts á bensíni Hátt í tveggja tíma veðmálaauglýsing í boði Rúv Hraðbankinn ófundinn, hungursneyð og skólar hefjast Farþegar látnir sofa á gólfinu á hóteli í Keflavík Grunaður hraðbankaþjófur í gæslu eftir allt saman Þurfa að bíða lengur eftir að komast í Sundhöllina Bíll konunnar sást á upptöku Þáttastjórnendum X-sins sagt upp Líta málið „mjög alvarlegum augum“ Hella áfenginu niður og hringja í foreldra Tuttugu milljónir í bankanum og kona í gæsluvarðhaldi Rigning og rok í methlaupi Sleppt úr gæsluvarðhaldi en málið enn til rannsóknar Hlaup hafið úr Hafrafellslóni Hungursneyð lýst yfir og forsætisráðherra segir alþjóðasamfélagið ráðalaust Sjá meira