Vill að tónlistarmenn fái ívilnanir BBI skrifar 27. nóvember 2012 22:59 Retro Stefson á Iceland Airwaves í ár. Mynd úr safni. Mynd/Mummi Lú
Kvikmyndaframleiðendur eiga möguleika á því að fá ívilnanir ef þeir framleiða kvikmyndir á Íslandi. Þingmaður Framsóknarflokksins, Eygló Harðardóttir, vill sjá sambærilegar ívilnanir í tónlistargeiranum og laða þannig poppstjörnur til landsins. Íslenska ríkið endurgreiðir 20% af framleiðslukostnaði kvikmynda sem gerðar eru á Íslandi. Nú hefur þingmaðurinn Eygló Harðardóttir lagt fram frumvarp á Alþingi þar sem lagt er til að sömu reglur gildi um tónlistarmenn. Frumvarp Eyglóar miðar að þeim sem taka upp tónlist eða tónlistarmyndbönd hérlendis. Lagt er til að þeir fái 20% endurgreiðslu á kostnaði við upptökurnar, rétt eins og kvikmyndagerðarmenn. „Við höfum séð hverju þetta hefur skilað í kvikmyndaiðnaði og ég tel að það séu sömu, ef ekki fleiri tækifæri, í tónlistariðnaði," segir Eygló í útvarpsþættinum Reykjavík Síðdegis á Bylgjunni í dag. Ef frumvarpið verður samþykkt munu íslenskir tónlistamenn njóta góðs af því auk þess sem erlendir tónlistamenn gætu jafnvel hugsað sér að koma til landsins til að vinna að tónlist sinni. Þannig miðar frumvarpið að því að nýta þá þekkingu og þann tækjabúnað sem er til staðar hér á landi í tónlistariðnaði. „Ég vil fá sem flesta tónlistarmenn til landsins. Og ég vil líka styðja við nýsköpun í íslenska tónlistargeiranum eins og hægt er," sagði Eygló í útvarpsþættinum Reykjavík Síðdegis í dag. Eygló telur mikilvægt að hlúa að tónlistariðnaðinum. „Þarna er að verða til raunveruleg atvinnugrein. Við verðum að fara að breyta viðhorfi okkar. Þetta er ekki hobbí. Þetta er ekki bara skemmtun, eins og við sem getum ekki haldið lagi upplifum þetta dagsdaglega. Þetta er raunveruleg atvinnugrein," sagði Eygló.Eygló Harðardóttir, þingkona Framsóknarflokksins.
Mest lesið Vaktin: Austanbylur annan í páskum Veður Bíll við bíl á Hellisheiði eftir að heyrúllur féllu á veginn Innlent Vanhæfi fyrirtækisins til að sinna skyldum sínum sé algert Innlent Lilja mætt aftur á Alþingi Innlent Vanalega óttist fólk að eitthvað hræðilegt sé að gerast Innlent Féll fyrir borð í Norðursjó í ofsaveðri Erlent Óveðrið hefur áhrif á flugáætlun Icelandair Innlent Yfirmaður leyniþjónustunnar felldur Erlent Orbán sakaður um sprengjutilræði Erlent Fylgstu með óveðrinu ganga yfir Veður Fleiri fréttir Vanhæfi fyrirtækisins til að sinna skyldum sínum sé algert Bíll við bíl á Hellisheiði eftir að heyrúllur féllu á veginn Lilja mætt aftur á Alþingi Óveðrið hefur áhrif á flugáætlun Icelandair Vanalega óttist fólk að eitthvað hræðilegt sé að gerast Lýstu eftir manni á níræðisaldri „Skynsamlegt að spyrja þjóðina“ Snjóflóð hrifsaði með sér göngugarpa Fólk stillt að mestu á Akureyri „Stórslysalaust“ á Ísafirði í nótt Hvernig greiðir Ragnar Þór atkvæði í ágúst? Gefur skít í helvítishótanir Trumps Viðreins býður fram sinn fyrsta lista á Akranesi Unnið að tillögum um lengingu brimvarnargarða Landeyjahafnar „Vatnsbólið er nánast tómt, það er að tæmast“ Hleypt inn í hollum í Vesturbæjarlaug Eldri borgarar einmana en eigi erfitt með að rífa sig upp á ný Segir stjórnvöld vinna gegn ferðaþjónustunni „Það er munur á karllíkama og kvenlíkama“ Mæla gegn því að ganga ofar en að Steini í Esjunni Óvissa í ferðaþjónustu og stuð á Aldrei fór ég suður Þrír vistaðir í fangaklefa og einn fluttur á bráðamóttöku Fyrsti innflytjandinn til að lesa Passíusálmana í kirkju skáldsins „Enginn ætti að þurfa að fara í annað land til þess að fá viðeigandi heilbrigðisþjónustu“ Lögregla lét loka þremur afhendingarstöðum áfengis „Þetta hlýtur að verða metdagur“ Snjóruðningstæki sat fast Göngin lokuð á næturnar í sjö vikur: „Hélt að þetta væri aprílgabb“ Sjúkrahúsið skilar ekki páskagjöf Smáríkisins Glórulaust að veginum hafi ekki verið lokað fyrr Sjá meira