Innlent

Pit Stop-málið: Aðalmeðferðinni frestað - dómurinn verður fjölskipaður

Úr Héraðsdómi Reykjaness
Úr Héraðsdómi Reykjaness Mynd úr safni
Aðalmeðferð í máli ríkissaksóknara gegn fimm mönnum, sem eru ákærðir fyrir sérstaklega hættulega líkamsárás á verkstæði í Hafnarfirði í september árið 2010, var frestað þegar hún átti að hefjast í morgun. Ákveðið hefur verið að dómurinn verði fjölskipaður og gert er ráð fyrir því að aðalmeðferðin fari fram um miðjan janúar á næsta ári.

Málið er hluti af stærra máli sem var skipt í tvennt. Aðalmeðferð í því máli fer fram í næstu viku en í máli eru meðal annars Annþór Kristján Karlsson og Börkur Birgisson ákærðir. Alls eru 10 einstaklingar ákærðir í því máli.

Verjendur skiluðu inn greinargerðum í dómsal í morgun en mennirnir eru ákærðir fyrir að hafa í félagi ráðist að manni á Pit-Stop verkstæði í Hafnarfirði, elt hann upp á aðra hæð verkstæðisins, slegið hann með kylfu í höfuð og líkama og hrint honum á glervasa sem brotnaðir. Maðurinn hlaut skurð á hvirfli, sem sauma þurfti með sex sporum, mar bólgu á vinstri framhandlegg og löngutöng.

Þá er einn af fimmmenningunum ákærður fyrir aðra sérstaklega hættulega líkamsárás á skemmtistað í Tryggvagötu í Reykjavík í mars í fyrra, með því að hafa kastað bjórglasi í andlit manns með þeim afleiðingum að glasið brotnaði, ýtt honum upp að vegg og tekið hann kverkataki. Maðurinn hlaut sár og skurð á andliti og hálsi sem þurfti með 38 sporum, yfirborðsáverka í hársverði, tognun á hálsvöðvum, varanlega sköddun á taugum til vinstri raddbands og lömun á vinstra raddbandi.

Fórnarlambið fer fram á 800 þúsund krónur í miskabætur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×