Innlent

Krefst upplýsinga um kostnað við málaferlin

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Ásmundur Einar Daðason vill vita hvað málaferlin kostuðu.
Ásmundur Einar Daðason vill vita hvað málaferlin kostuðu.
Ásmundur Einar Daðason, þingmaður Framsóknarflokksins, segir að það sé óvenjulegt að forstjóri ríkisstofnunar krefjist hærri launa á meðan hann er við störf hjá stofnuninni.

Hann lagði fram fyrirspurn á Alþingi í gær um það hver kostnaður Seðlabanka Íslands af málaferlum Más Guðmundssonar seðlabankastjóra gegn bankanum hefði verið. Már stefndi bankanum vegna kjaraskerðingar sem hann varð fyrir þegar laun þeirra sem heyra undir kjararáð voru lækkuð. Ásmundur spurði líka hvort seðlabankastjóri myndi endurgreiða bankanum þann kostnað.

„Ég vildi bara fá þessar upplýsingar upp á borðið, því það er svolítið óvenjuelgt að nýráðinn forstjóri ríkisstofnunar sé í málaferlum við sjálfan sig án þess að hætta störfum á sama tíma og hann er að hvetja til þess að sýnt sé aðhald í launahækkunum á almennum vinnumarkaði," segir Ásmundur Einar. Hann segir að þarna sé um að ræða frekar óvenjulegt mál og hann hafi viljað fá þessar upplýsingar upp á borðið. „Ég vildi bara sjá hver kostnaðurinn er við þessi málaferli," segir hann.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×