Þjóðarátak um atvinnusköpun 14. nóvember 2012 20:02
Í dag voru kynntar hugmyndir að átaki fyrir það fólk sem missir rétt til atvinnuleysisbóta vegna þess að það hefur verið atvinnulaust lengur en í fjögur ár. Frá byrjun september og fram til ára móta missa um 400 manns þennan rétt, um áramót bætast svo 1.500 manns við og seinna árinu 2013 bætast svo 1.800 við. Samtals er því um að ræða 3300 manns. Hugmyndirnar sem kynntar voru miða við að sveitarfélög, ríki og aðilar vinnumarkaðsins búi til 2.200 störf sem ætluð eru fólki sem er að missa rétt til atvinnuleysisbóta. Taki fólk ekki störfunum missir það rétt til framfærslustyrks. Þá er stefnt að því að hámarkstími sem atvinnuleysisbætur eru greiddar út verði aftur þrjú ár. Það fyrirkomulag hefur reyndar lengst af verið við lýði fyrir utan að í fyrra var ákveðið að lengja tímabilið tímabundið í fjögur ár.Sveitarfélögin standa frammi fyrir miklum vanda vegna þessa, þar sem talið er að þau muni þurfa að styrkja stóran hluta þessa fólks sem nú missir atvinnuleysisbætur. Mjög hefur fjölgað í þeim hópi undanfarin ár og er átakinu ekki síst ætlað að virkja það fólk aftur til starfa. Runólfur Ágústsson, stjórnarformaður Vinnumálstofnunar, segir að með þessu sé tryggt að engin sem sé að fullnýta sinn bótarétt detti út af atvinnuleysisbótum, án þess að fá starfstilboð eða tilboð um starfsendurhæfingu. Þannig eigi að reyna tryggja öllum tækifæri. Merkilegt sé að hafa náð samstöðu um þetta milli sveitarfélaga, atvinnurekanda, stéttarfélaga og ríkisins. Með sanni megi kalla þetta þjóðarátak. Í gögnum sem Runólfur kynnti á fundi í dag kemur fram að ef 60 prósent taka tilboði um störf þurfa samtals 2.200 sex mánaða starfstengd, vinnumarkaðsúrræði að vera í boði á árinu 2013. Ætlunin er að almenni vinnumarkaðurinn skapi 1.320 þeirra eða 60%, ríkið skapi 220 þeirra eða 10% en sveitarfélög muni svo að lágmarki skapa 660 þeirra eða 30%.Halldór Halldórsson, formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga.Sp. blm. En hvers konar störf verða þetta? „Þetta verða þau störf sem að sveitarfélög, ríki og fyrirtækin í landinu geta boðið upp á og þurfa væntanlega að vera töluvert hugmyndarík til að gera það," segir Halldór Halldórsson, formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga. Ekki er búist við því að allir þiggi þau störf sem í boði verða. Þó verður reynt að finna störf við hæfi hvers og eins. Engin mun fá lægra en lágmarkslaun en áætlað er að meðallaunin muni nema um 300 þúsund krónum. „Þetta er miðað við að þeir sem eru að falla út af skrá, frá og með 1. september á þessu ári, verði boðin vinna í áföngum frá og með desember og allt næsta ár. Þannig það á að reyna sinna öllum en svo skiptist þetta, sumir lenda inn á fjárhagsaðstoð, sumir lenda inn á VIRK-vinnuúrræði og svo framvegis og svo vonandi munu flestir þeirra sem taka vinnu svo í framhaldinu fá vinnu út á hinum almenna vinnumarkaði, það er það sem við vonumst til að gerist," segir Halldór.Gissur Pétursson, forstjóri Vinnumálstofnunar, segir að í raun sé um að ræða neyðarúrræði fyrir hóp sem ella væri í mikilli hættu á að falla algjörlega út af vinnumarkaðnum og úr virkni í samfélaginu. Verkefni Vinnumálstofnunar munu aukast gríðarlega við þessa aðgerð þar sem stóraukin áhersla verður á greiningarviðtöl og ráðgjöf. Því verður fallið frá fyrirhuguðum niðurskurði hjá stofnuninni en framlög til hennar þess í stað aukin. Kostnaður Atvinnuleysistryggingasjóðs vegna þessa er áætlaður 2,7 milljarðar króna. Fyrirvarar við tillöguna eru að fjármögnun verði tryggð, háð samþykki stjórnar sjóðsins, ríkisstjórnar og Alþingis og almennri þátttöku sveitarfélaganna. „Þetta er ýfið dýrara en ef fólk færi aðeins inn á fjárhagsaðstoð. Þannig þetta er dýrara til skemri tíma en við metum það svo að þetta sé ódýrara til lengri tíma. Mikilvægast er að þetta gagnist einstaklingunum sem eru atvinnulausir. Það er auðvitað það mikilvægasta í þessu," segir Halldór að lokum. Fréttastofa ræddi við ungt fólk í dag sem lengi hefur verið án atvinnu. Þau segja að depurð, sinnuleysi og heilsubreyst fylgja ástandinu. Hægt er að sjá viðtalið með því að smella hér.
Mest lesið Áhrifavaldur sakaður um að bera ábyrgð á dauða dóttur sinnar Erlent Íranir neita að hafa skotið eldflaugum Erlent Fjögur búsetuúrræði Vinnumálastofnunar standa auð Innlent Breytingar á lögum um sjúkratryggingar mismuni eftir efnahagsstöðu Innlent Æf vegna ummæla Kristrúnar um falsfréttir: „Þessi skammarlegu, ómaklegu ummæli“ Innlent Sé tilraun til að þagga niður í gagnrýni Innlent Ísraelar samþykkja vopnahlé Trumps Innlent Sextán ár fyrir að bana dóttur sinni Innlent Fundað á Alþingi fram á nótt og framhald strax klukkan tíu Innlent Sektaður um 240 þúsund fyrir að halda sauðfé í Grindavík Innlent Fleiri fréttir Eldur í tveimur taugrindum Sektaður um 240 þúsund fyrir að halda sauðfé í Grindavík Fundað á Alþingi fram á nótt og framhald strax klukkan tíu Breytingar á lögum um sjúkratryggingar mismuni eftir efnahagsstöðu 42 prósent fanga erlendir ríkisborgarar Sé tilraun til að þagga niður í gagnrýni Fjögur búsetuúrræði Vinnumálastofnunar standa auð Ísraelar samþykkja vopnahlé Trumps Æf vegna ummæla Kristrúnar um falsfréttir: „Þessi skammarlegu, ómaklegu ummæli“ Engar stórvirkjanir í Skagafirði en opið að fara í Kjalölduveitu Ísland muni ekki verja fimm prósentum til varnarmála Mikill reykur eftir að kviknaði í annarri efnalaug „Við erum auðvitað ekki komin þangað“ Telja einhvern hér á landi búa yfir vitneskju um hvað kom fyrir Jón Þröst Fleiri handteknir í Borgarnesi Átök breiðast út í Mið-Austurlöndum, virkjanaáform og brúðkaup Bezos Gert að greiða fyrrverandi manni sínum bætur vegna dreifingar á nektarmynd Sextán ár fyrir að bana dóttur sinni Leita fulltingis forseta til að fá upplýsingar um veiðigjöld Lúsmý um allt land en bitmýið einnig árásargjarnt Kona féll í Svöðufoss „Það gengur ekki að þingið sé tekið í gíslingu“ „Landslið barna“ tekið til starfa á Suðurnesjum Grunar að fjárheimildir ætlaðar þjónustu hafi farið í launakostnað „Annars værum við ekki að leggja í þessar miklu aðgerðir“ Flaug í einkaflugi með Støre Réðst á einstakling á sjötugsaldri með hníf Lætur reyna á hvort samræði við þrettán ára sé nauðgun Biðla til foreldra: Barn einungis þrjátíu sekúndur að drukkna Árásum á Íran haldið áfram og enn þráttað um veiðigjöld Sjá meira